RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu:Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 1. hæð við Maríubakka 12 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 70,9 fm samkvæmt HMS, þar af geymsla 3,7 fm. Húsið hefur töluvert verið endurnýjað á síðustu árum. Meðal annars múrviðgert og málað að utan. Þá var gert við svalir og svalagólf málað. Þakjárn var endurnýjað ásamt þakkanti, þakrennum og niðurfallsrörum. Nýlega var skipt um glugga, gler og svalahurð í stofu. Nýir ofnar eru í hluta íbúðar. Borðplata í eldhúsi er ný, vaskur í eldhúsi nýr, ný blöndunartæki á baði og nýbúið að mála alla íbúðina.
***Íbúðin er laus við kaupsamning***Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Forstofa: flísar á gólfi og fataskápur
Eldhús: flísar á gólfi, gott skápapláss, borðkrókur. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Stofa og borðstofa: eru í sameiginlegu opnu rými með parketi á gólfi og útgengi á suður-svalir.
Svefnherbergi: er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, gott skápapláss.
Þvottahús: er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Geymsla: fylgir með íbúð í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk