Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð fjölbýlishúsi við Álfhólsveg 1491 í Kópavogi. Möguleiki er að setja upp íbúð í bílskúrnum, en nú er þar herbergi, sem hentar vel til útleigu. Þvottahús er innan íbúðar. Mikið útsýni er af hæðinni yfir Fossvoginn og Elliðaárvoginn.
Eignin er skráð alls 103,3 m2, þar af er íbúð 77,1m2 og bílskúr 26,2 m2. Húsið er byggt árið 1976 og eru fjórar íbúðir í húsinu. Húsið er steypt og klætt að hluta að utan. Glæsilegt útsýni frá stórum svölum sem liggja með tveim hliðum, suður og vestur. Stutt er í skóla, leikskóla, framhaldsskóla og alla verslun og þjónustu. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu.
Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í rúmgott anddyri með parketi á gólfi. Til vinstri eru eldhús og stofur en til hægri er gangur inn í tvö svefnherbergi og baðherbergi. Eldhúsið er með snyrtilegri og vel með farinni hvítri innréttingu, flísar á gólfi. Inn af eldhúsinu er þvottahús og búr. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á stórar svalir sem snúa í suður og vestur. Svefnherbergin eru tvö, stærra herbergið/hjónaherbergi er með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Mikið útsýni er úr herberginu. Barnaherbergið er ágætlega rúmgott og með parketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Bílskúrinn er í dag nýttur sem unglingaherbergi og fremri 1/4 hluti hans er geymsla. Nokkuð einfalt er að leggja fyrir salerni og setja upp sturtu. Handlaug er í rýminu í hvítri innréttingu og því hægt að koma fyrir eldhúsinnréttingu á þeim vegg. Fyrir framan bílskúrinn er hægt að leggja allt að fjórum bílum í röð en bílastæði eru einnig við Álfhólsveginn. Snyrtileg og falleg lóð er sameiginleg. Sameignin er snyrtileg og nýlega máluð og teppalögð. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og íbúðin líka.
Hér er skemmtileg eign á ferðinni á besta stað við Álfhólsveginn og er Álfhólsskóli hinum megin við götuna frá húsinu. Mikið og fallegt útsýni er úr íbúðinni. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
07/03/2008
20.290.000 kr.
23.500.000 kr.
103.3 m2
227.492 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.