Fasteignamiðstöðin kynnir eignina Karlsstaðir , póstnúmer 626 Ólafsfirði, fasteignanúmer F215-3714 og landeignanúmer L150902 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Landnámsjörðin Karlsstaðir er í Ólafsfirði, næst fremsti bærinn í firðinum að austan. Jörðin er talin vera samkvæmt HMS um 792 hektarar að stærð. Íbúðarhúsið, sem gert hefur verið upp að fullu, er samtals 131 m2, efri hæðin er 75 fermetrar með tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi og baði, neðri hæðin er séríbúð með sérinngangi, 58 fermetrar, með svefnherbergi, eldhúsi, baði og stofu. Stigi er á milli hæðanna. Á síðustu fjórum árum hefur íbúðarhúsið verið gert upp, ný gólfefni upp og niðri, hiti í gólfi á neðri hæð, nýir gluggar, húsið klætt að utan með einangrun. Varmadæla er í húsinu (loft í vatn) sem og ljósleiðari inn í húsið. Búið er að endurnýja rafmagn og töflu.
Á Karlsstöðum er skógrækt, en tæp 80.000 tré hafa verið gróðursett þar á 55 ha landi undanfarin 4 ár mestmegnis norðan við bæinn sjálfan, en hann er innan skógræktarinnar. Skógræktin er öll innan girðingar.
Jörðin á land að þremur ám, annars vegar Fjarðaránni, sem rennur um botn dalsins, Grímsá til norður og Lambaá til suðurs. Seljandi telur möguleika á heitu vatni ef borað er.
Tilvísunarnúmer: 10-2838
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.