Fimmtudagur 2. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 17. jan. 2026

Tjarnabraut 8

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
89 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
639.326 kr./m2
Brunabótamat
45.250.000 kr.
Fasteignanúmer
22883022
Húsgerð
Fjölbýlishús

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Tjarnabraut 8D, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða fallega 3ja herbergja, 89 fm. íbúð á 2 hæð, á góðum stað í Njarðvík.
Íbúð merkt 207.
Eignin skiptist í anddyri, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús/geymslu og rúmgóðar svalir.
Staðsetningin er góð, í göngufæri við leik- og grunnskóla.
 
Nánari lýsing:

Gengið er inn í flísalagða forstofu.
Svefnherbergin er tvö með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús hefur viðar innréttingu með góðum eldhústækjum og miklu skápaplássi. Parket er á gólfi.
Rúmgóð og björt stofa/borðstofa með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkar.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar.
Bílaplan er malbikað og gangstéttir hellulagðar, sérmerkt bílastæði fylgir eigninni, lóð umhverfis hússins er graslögð.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
 
Staðsetningin er virkilega góð, stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og alla helstu þjónustu.
Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt er upp á Reykjanesbrautina.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið es@es.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. verðskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun Suðurnesja

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 4 íbúð 220
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 4 íbúð 220
210 Garðabær
113.3 m2
Fjölbýlishús
312
1041 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 101
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 2 - íbúð 101
210 Garðabær
100.5 m2
Fjölbýlishús
312
1026 þ.kr./m2
103.100.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 íb 403
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Vesturvin V2 íb 403
101 Reykjavík
102 m2
Fjölbýlishús
312
1093 þ.kr./m2
111.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V2 íb 201
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Vesturvin V2 íb 201
101 Reykjavík
95 m2
Fjölbýlishús
312
1095 þ.kr./m2
104.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin