Föstudagur 1. maí
Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
84 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
108.900.000 kr.
Fermetraverð
1.296.429 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532689
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

S8 ehf. og Hlíðarhorn.is kynna Valshlíð 3 - Íbúð 408.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin er tilbúin og afhendist við kaupsamning. Íbúðinni fylgir forgangsleiga í sérreknum bílakjallara og sérmerkt leigustæði.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 81,675,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

S8-leiga: Íbúðin er einnig í boði til leigu ótímabundið en að lágmarki í 2 ár. Leiguverð íbúðar er 395.000 að viðbættu hússjóðsgjaldi.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja rúmgóð íbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 84 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir og svalir, 2 svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 2. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum, útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa inn í inngarð og einnig út á rúmlega 17 fm þaksvalir með tengi fyrir heitan pott. Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur og vínkælir. Rúmgott hjónaherbergi með góðu fataherbergi. Svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0031. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur geta valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá link að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjónarvegur 3
Opið hús:06. maí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Sjónarvegur 3
Sjónarvegur 3
210 Garðabær
107.2 m2
Fjölbýlishús
312
904 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 12
Opið hús:03. maí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Barmahlíð 12
Barmahlíð 12
105 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
412
879 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 13
Opið hús:05. maí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
838 þ.kr./m2
78.400.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 15
Bílastæði
Opið hús:05. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Strandvegur 15
Strandvegur 15
210 Garðabær
119 m2
Fjölbýlishús
413
898 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin