Mánudagur 7. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 17. maí 2025
Deila eign
Deila

Hólavegur 12

EinbýlishúsNorðurland/Sauðárkrókur-550
110 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
45.000.000 kr.
Fermetraverð
409.091 kr./m2
Fasteignamat
41.600.000 kr.
Brunabótamat
48.450.000 kr.
Byggt 1948
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2131763
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Svalir
Pallur sunnan við húsið
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Hólavegur 12, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Hlaðið, fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð alls 110 fm. og byggt árið 1948. Leigulóðin er 560 fm.
Fasteignin er vel staðsett en stutt er í ýmsa þjónustu á borð við skóla, yngri deild leikskóla, íþróttasvæði, sundlaug o.fl.


Einbýlishúsið skiptist í þrjú herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, þvottahús, geymslu og forstofu.
Inngangur er sunnan við húsið þar sem komið er í flísalagða forstofu
Herbergi eru öll rúmgóð og tvö þeirra parketlögð. Þriðja herbergið er flísalagt en parket er til á það herbergi. 
Stofa er parketlögð.
Rúmgott eldhús sem er flísalagt og þar er hvít innrétting með dökkri borðplötu. Eldavél frá Electrolux.
Frá eldhúsi er flísalagt þvottahús og köld geymsla þar inn af. 
Inngangur frá þvottahúsi. 
Baðherbergi var endurnýjað 2016. Á gólfi eru flísar. Sturtuklefi er flísalagður. Hvít innrétting við vask og speglaskápur.
Geymsluloft er yfir öllu húsinu og geymslukjallari undir hluta þess.

Gólfefni var allt endurnýjað árið 2022 fyrir utan forstofu, eldhús, þvottahús, búr og eitt herbergi.
Á baðherbergi er búið að leggja gólfhita sem eftir er að tengja.
Nýjar ofnalagnir hafa verið lagðar í tvö herbergi en eftir að leggja að glugga og setja nýja ofna.
Brunnur er nýr og nýjar lagnir frá brunni og út í götu.
Bílaplan er malarborið. 
Grænt svæði er frá garði vestan við húsið.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/07/202021.500.000 kr.29.500.000 kr.110 m2268.181 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin