Sunnudagur 8. mars
Fasteignaleitin
Opið hús:10. mars kl 17:00-17:30
Skráð 21. júlí 2025

Norðurstígur 3

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
133.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
434.359 kr./m2
Fasteignamat
59.450.000 kr.
Brunabótamat
58.250.000 kr.
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2094027
Landnúmer
129751
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu góða neðri hæð ásamt bílskúr við Norðurstíg 3, 260 Njarðvík.

Um er að ræða 133,3 fm eign á neðri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi, þar af er 33,8 fm bílskúr þar sem útbúið hefur verið studio herbergi með sérbaðherbergi. Eignin er staðsett á góðum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu, meðal annars Njarðvíkurskóli, Íþróttahúsið í Njarðvík, bakarí  og matvöruverslun.


Eignin samanstendur af anddyri, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu, eldhúsi, auk herbergis í bílskúr með sturtu og salerni.
Birt stærð eignar er 99,5 fm og bílskúrinn 33,8 fm, samtals 133,3 fm.

Forstofa / þvottaaðstaða:

Flísar eru á gólfi og góð innrétting sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð.
Eldhús / borðstofa:
Rúmgott eldhús með steyptu gólfi. Eldhúsinnrétting er svört með innbyggðum ofni, helluborði og viftu, auk hvítra efri skápa. Gott pláss er fyrir eldhúsborð.
Stofa:
Björt og rúmgóð stofa með steyptu gólfi.
Svefnherbergi:
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru bæði rúmgóð, með steyptu gólfi og skápum
Baðherbergi:
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er upphengt salerni, snyrtileg innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Bílskúr:
Í bílskúrnum hefur verið útbúið herbergi með parketi á gólfi. Þar er einnig baðherbergi með flísum á gólfi, salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.

* Gólfhiti á allri íbúðinni
* Auka herbergi í bílskúr
* Steypt innkeyrsla
* Frábær staðsetning, göngufæri við Njarðvíkurskóla, íþróttahús, sundlaug og verslun. 


Nánari upplýsingar veita:
Dísa Edwards, í síma 560 - 5510, tölvupóstur disa@allt.is
Jóna Björg, í síma 560 - 5506, tölvupóstur jona@allt.is


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/09/202031.850.000 kr.34.500.000 kr.133.3 m2258.814 kr.
14/04/201614.500.000 kr.18.500.000 kr.115.7 m2159.896 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1971
3.4 m2
Fasteignanúmer
2094027
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.450.000 kr.

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Framnesvegur 65
Opið hús:08. mars kl 13:00-13:30
Canva- framnes65.jpg
Skoða eignina Framnesvegur 65
Framnesvegur 65
101 Reykjavík
79.4 m2
Fjölbýlishús
312
817 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
870 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 505 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 37, íb. 505 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
89.2 m2
Fjölbýlishús
312
830 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, Íb. 309
Hringhamar 35, Íb. 309
221 Hafnarfjörður
98 m2
Fjölbýlishús
312
755 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin