Sunnudagur 16. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 11. ágúst 2026

Grenilundur 14

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
50.9 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
38.000.000 kr.
Fermetraverð
746.562 kr./m2
Brunabótamat
22.360.000 kr.
Byggt 1965
Pallur
Fasteignanúmer
2209123
Húsgerð
Sumarhús

Miklaborg kynnir: Virkilega fallegan og mjög mikið endurnýjaðan sumarbústað á eignalóð sem er samkvæmt þjóðskrá 3125 fm í landi Miðfells í Bláskógabyggð við Þingvallavatn. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár er birt flatarmál hússins 41,3 fm ásamt 9,6 fm geymsluskúr, samtals 50,9 fm. Húsið er A hús byggt 1965. Möguleiki er á að stækka aðalhúsið upp í 100 fm og byggja viðbótar sumarhús/gestahús allt að 30 fm. Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið) og opnanlegt með fjarstýringu.

Stutt frá ýmis konar þjónustu t.a.m. golfvelli í Grímsnesi, veiði á Þingvallavatni, Laugarvatn, gullna hringinn og þá þjónustu sem þar er í boði. Nánari upplýsingar veita: Bára Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8998809 eða bara@miklaborg.is


Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fatahengi, flísar á gólfi og rafmagnshiti í gólfi. Inn af forstofu er glæsilegt nýuppgert baðherbergi, sturta með glerþili, flísar á gólfi og á hluta af veggjum, rafmagnshiti í gólfi. Eldhús er með glænýrri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði og keramikvask. Borðplata er úr gegnheilum við . Stofa og borðstofa með nýju furu parketi og útgangi út á timburpall. Kamína í stofu. Svefnloft er yfir bústaðnum að hluta, með glugga, endurbættur stigi er upp í svefnloft, nýtt furu parket á gólfum. Nýr pallur er fyrir fram hús og aftan. Aðalpallur snýr í suður. Hér er um að ræða yndislegan sælureit sem hægt er að njóta allt árið um kring. Innbú og tæki fylgja með kaupum.


Núverandi eigendur keyptu eignina 2023, frá þeim tíma hefur bústaðurinn verið endurnýjaður að mestu leyti.  Þær framkvæmdir sem hefur verið ráðist í að sögn eiganda eru:

AÐ UTAN:
- þak meðhöndlað gegn ryði (grunnmálað) og málað
- öll lagnakerfi (vatnslagnir) endurnýjuð
- nýtt veggvirki á suðurhlið með nýjum tvöföldum gluggum og svalahurðum.
- nýtt gólfvirki, styrkt með auka gólfbitum og einangrað.
- baðherbergi endurnýjað í heild, stækkað rými (veggir og gólf endurbyggð), einangrað (+ rakavörn/dúk)
- ný viðarklæðning á öllu húsinu (viðbætt útilýsing)
- nýir og stækkaðir pallar fyrir framan og aftan hús

AÐ INNAN:
- þakeinangrun (5 cm frauðplast) bætt við ásamt rakavörn
- allt raflagnakerfi endurnýjað
- veggir endurbættir og endurbyggðir (slípaðir, málaðir, handslípaðir og lakkaðir)
- nýtt viðargólf (fura) með OSB-plötum undir
- uppsettur hitakútur (160 l) og hitakapall
- rafmagnsgólfhiti á baðherbergi og í inngangi
- nýr hreinlætisbúnaður á baðherbergi (nú með hitara og opinni sturtu), nýar flísar
- uppsett varmadæla (loft-í-loft) með Wi-Fi tengingu (Mitsubishi MSZ-LN25)
- glænýtt eldhús – þ.m.t. uppþvottavél, spanhelluborð, ofn, ísskápur, borðplata úr gegnheilum við, keramikvaskur og öll smærri tæki
- loftræstiviftur settar upp á baðherbergi og í eldhúsi
- stigi endurbættur og styrktur (festur við vegg)
- reykháfur styrktur og útblástursrör fyrir arin fært til (lengt)
Fyrri eigendur settu upp rotþró og nýjar vatnslagnir inn í húsið árið 2023.
Þakið var endurnýjað fyrir 12–13 árum.

Nánari upplýsingar veita: Bára Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8998809 eða bara@miklaborg.is


DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/09/202319.150.000 kr.20.500.000 kr.50.9 m2402.750 kr.
13/10/202214.850.000 kr.20.100.000 kr.50.9 m2394.891 kr.
27/07/202114.500.000 kr.12.500.000 kr.50.9 m2245.579 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Seljaland 10
Á einni hæð
Skoða eignina Seljaland 10
Seljaland 10
806 Selfoss
49.8 m2
Sumarhús
12
922 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina B-Gata lóð 3
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina B-Gata lóð 3
B-gata lóð 3
806 Selfoss
46.5 m2
Sumarhús
12
643 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina A-Gata 6
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina A-Gata 6
A-gata 6
805 Selfoss
65.1 m2
Sumarhús
312
613 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Bringur 13
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Bringur 13
Bringur 13
806 Selfoss
69.7 m2
Sumarhús
413
529 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin