ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Árvað 1 í 110 Reykjavík er falleg og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu steinsteyptu fjölbýlisshúsi með lyftu, á eftirsóttum stað í Norðlingaholti. Íbúðin býður upp á vel skipulagt rými þar sem anddyri, eldhús og stofa mynda fallega heild, auk þriggja rúmgóðra svefnherbergja, baðherbergis, þvottaherbergis innan íbúðar og sérgeymslu í sameign. Út frá stofu er gengið út á suðursvalir sem bjóða upp á einstakt útsýni til fjalla og yfir Heiðmörkina. Fyrir framan húsið er stórt og gott bílastæði og er staðsetningin sérstaklega þægileg fyrir fjölskyldufólk, þar sem örstutt er í bæði leik- og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing eignar:Við inngang er komið inn í rúmgott
anddyri með fatahengi og parket á gólfum.
Eldhúsið er einstaklega fallegt og opið inn í stofuna, búið vandaðri innréttingu, eldunareyju, spanhelluborði og háfi. Rýmið nýtur mikillar birtu og er parket á gólfum.
Stofan er björt og rúmgóð með útgengi út á suðursvalir þar sem útsýnið nýtur sín vel – fullkominn staður til að njóta sólríkra daga og friðsældar.
Hjónaherbergið er rúmgott með stórum þreföldum fataskáp og parketi á gólfi. Auk þess eru
tvö rúmgóð svefnherbergi í íbúðinni, bæði með skápum og parketi.
Baðherbergið er snyrtilegt og stílhreint, með eikarinnréttingu og góðu skápaplássi. Þar er upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu. Innan íbúðarinnar er sér
þvottaherbergi með rúmgóðu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign hússins er vel hirt, stigagangur með nýlegu teppi á gólfum og fylgir
sérgeymsla í sameign auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Lóðin er snyrtileg og vel hirt með steyptum bílastæðum.
Mjög áhugaverð eign í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, útisvæðið, sem og alla helstu þjónustu og verslanir. Svæðið er sérstaklega hentugt fyrir fjölskyldufólk með frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og fjölbreytta útivistarmöguleika í kringum Norðlingaholt.Allar nánari upplýsingar veitir:
Ásgeir Þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 772-0102, tölvupóstur asgeir@allt.is Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.