Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kjarnagata 37 íbúð 201 – Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu í Naustahverfi á Akureyri - stærð 94,1 m² þar af er geymsla á jarðhæð 7,1 m²
Eignin skiptist í sólstofu, forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Á jarðhæðinni er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Sólstofa er fyrir framan forstofuna, skráð 15,8 m² að stærð og með flísum á gólfi. Fermetrar í sólstofu eru ekki skráðir í heildar stærð eignar.
Eldhús, vönduð spónlögð eikar innrétting með ljósum flísum á milli skápa. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. AEG ofn og helluborð.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar suður svalir, skráðar 10,3 m² að stærð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, gráar flísar á gólfi og hvítar á veggjum. Vönduð spónlögð eikar innrétting og speglaskápur. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt wc og sturta með glervængjum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,9 , 11,6 og 13,5 m².
Á jarðhæð er sér
geymsla, skráð 7,1
m² að stærð og með flísum á gólfi.
Annað:- Sumarið 2025 fóru fram múrviðgerðir á húsinu, auk þess sem það var málað að utan.
- Allar innréttingar eru spónlagðar með eik.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Steyptar suðursvalir, skráðar 10,3 m² að stærð.
- Eignin er í útleigu til 1.júní 2026.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.