BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HLÉSKÓGAR 12 ÍBÚÐ 101, 700 Egilsstaðir. Fimm herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr.
Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt, byggt árið 1979. Eignin skiptist í Íbúð 140.5 m², geymsla 10.9 m² og bílskúr 35 m², samtals 186.4 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús og búr. Bílskúr, kjallari/gryfja. Í sameign: Forstofa, stigahús.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |Nánari lýsing: Sameiginleg forstofa, stigahús, teppi á gólfi.
Anddyri íbúðar, flísar á gólfi, fatahengi, þrefaldur fataskápur, frá anddyri liggur
gangur að svefnherbergjum og baðherbergi.
Eldhús, harðparket á gólfi, Ikea innrétting, helluborð og vifta, Whirlpool ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu (getur mögulega fylgt),
innangengt er í borðstofu annarsvegar og í þvottahús hinsvegar úr eldhúsi.
Stofa og borðstofa, harðparket á gólfi, útgengt út á hellulagða verönd, innangengt er í eldhús úr borðstofu.
Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með fataskápum yfir heilan vegg, tvöfaldur fataskápur í öðrum herbergjum, plastparket á gólfi.
Baðherbergi, vínylparket á gólfi, sturta flísar á veggjum, vaskinnrétting og snyrtiborð, upphengt salerni, gluggar.
Þvottahús, málað gólf, innrétting frá Ikea, vaskur í borði, hækkun fyrir eina vél, snúrur og gluggi.
Bílskúr, málað gólf, rafræn opnun, gryfja/kjallari er í skúr, gengið er í kjallara á hlið bílskúrs, veggfastar hillur eru í gryfju/kjallara.
Húsið er steypt, járn á þaki, málað þak á bílskúr, timburgluggar og hurðar.
Húsið var málað að utan sumarið 2022. Rúður hafa verið endurnýjaðar að hluta (ekki í suðurglugga í stofu), móða er á milli glerja á gangi. Ekki er starfandi húsfélag í eigninni.
Hellulögð stétt liggur að aðinngangi hússins, malarbílaplan er fyrir framan við hús og bílskúra. Lóð er gróin, hellulögð verönd er framan við húsið og við útgang úr stöfu. Sorptunnuskýli er við bílastæði.
Lóðin er 1593.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5716.Stærð: Íbúð 151.4 m². Bílskúr 35.0 m² Samtals 186.4 m².
Brunabótamat: 94.350.000 kr.
Fasteignamat: 60.600.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 62.500.00 kr.
Byggingarár: 1979.
Byggingarefni: Steypa.