Föstudagur 2. október
Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Koðrabúðir 11

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
71.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
701.828 kr./m2
Brunabótamat
45.850.000 kr.
Byggt 2006
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22950471
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali (s: 694 4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallegt 71,1 fm sumarhús byggt árið 2006 á fallegum útsýnisstað í grónu landi við Tungufljót, Biskupstungum í Bláskógabyggð. Húsið stendur á 4.074 fm eignarlóð. Að utan er húsið klætt með liggjandi klæðningu. Þakið og rennurnar voru endurnýjaðar árið 2025 og komið bárujárn. Stór verönd / pallur með lýsingu kringum húsið. Rafmagnskynding er í húsinu og stendur húsið á púðum. Það stendur til að laga veginn að bústaðnum en engin ákvörðun hefur verið tekin. Nýlegur rafmagnspottur - geymsluskúr á palli. 

Að innan skiptist húsið í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Andspænis inngangi er svefnherbergi I með innbyggðum kojum. Parketlagður gangur með rúmgóðum skáp þar sem er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þar á móti er svefnherbergi II með tvíbreiðu rúmi. Rúmgott svefnherbergi III er við enda gangsins. Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og útgangi út á pall. Stofa og eldhús í opnu rými (upptekið loft) með parketi á gólfi og frá þessu rými er unnt að ganga út á pallinn. Falleg eldhúsinnrétting með spanhelluborði ásamt innbyggðum Siemens ísskáp og uppþvottavél.
Gólfefni bústaðar: parket og flísar.

Bústaðurinn hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er einstaklega vel staðsettur með frábæru útsýni í landi Heiðar í Bláskógabyggð þar sem ýmsa þjónustu er að finna. Húsið er í um það bil 10 mínútna fjarlægð frá Geysissvæðinu, Laugarvatni, Reykholti og Flúðum þar sem jafnframt er mikla þjónustu og afþreyingu að finna, sundlaugar, veitingahús og verslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þrastahólar 9
Heitur pottur
Skoða eignina Þrastahólar 9
Þrastahólar 9
805 Selfoss
89.3 m2
Sumarhús
423
693 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íbúð 303 HLUTDEILDARLÁN
Hleðslustöð
Opið hús:06. okt. kl 17:45-18:15
Hnjúkamói 14 íbúð 303 HLUTDEILDARLÁN
815 Þorlákshöfn
53.3 m2
Fjölbýlishús
211
842 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9 íbúð 201 HLUTDEILDARLÁN
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Hnjúkamói 9 íbúð 201 HLUTDEILDARLÁN
815 Þorlákshöfn
80.9 m2
Fjölbýlishús
312
742 þ.kr./m2
60.000.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9 íbúð 201 HLUTDEILDARLÁN
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Hnjúkamói 9 íbúð 201 HLUTDEILDARLÁN
815 Þorlákshöfn
80.9 m2
Fjölbýlishús
312
742 þ.kr./m2
60.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin