Aðalsteinn Jón Bergdal og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallegt og vel skipulagt 4ra til 5 herbergja einbýlishús með stórum, tvöföldum bílskúr sem einnig er með auka studioíbúð og góðri geymslu sem byggð var við sem og einangruðum geymslugáml sem skiptist í 2 geymslur. Einstaklega skemmtileg lóð með frábæru sjávarútsýni, stutt í fjöruna og útsýni yfir borgina. Lóðin stendur örskot fyrir innan Grundarhverfi á Kjalarnesinu. Sveit í borg á 3800 fm landi. Skemmtilegar gönguleiðir út á nesið eða inn í hverfið. Golfvöllur í örskotsffjarlægð. Frábær staður fyrir þá sem vilja hafa sitt eigið land til ræktunar matjurta ofl. og einstaklega skemmtilegt að vera með dýr þarna.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Bókið skoðun hjá Önnu í síma 864-1612
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 202,1 fm þar sem húsið er skráð 124,3 fm og bílksúr 77,8 fm en búið er að bæta við síðan sem ekki er skráð.
Nánari lýsing:
Húsið:Forstofa er rúmgóð með skáp og flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla við hlið forstofu er rúmgóð með flotað gólf og skolvask.
Stofa/borðstofa í góðu rými með parket á gólfi. (hægt að setja léttan vegg og bæta við svefnherbergi). Útgengt á stóran sólarpall með nýlegu timpri og frábært útsýni.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, viftu yfir helluborði, flísar milli skápa og parket á gólfi og góður borðkrókur.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi. Útg. á pall.
Svefnherbrgi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi var nýlega endurnýjað að hluta og er með "walk-in" sturtu, góða innréttingu, flísalagt í hólf og gólf og gluggi.
Bílskúr er mjög stór þar sem búið er að gera góða
studioíbúð með öllum .þægindum og sérinngang. Íbúðin er 29 fm. með eldhúshorni, parket á gólfi og sérbaðherbergi með sturtu.
3ja fasa rafmagn í bílskúr og gott geymslupláss, hitaveita, heitt og kalt vatn og skolvaskur. Byggð var við bílskúrinn 18 fm aðskilin geymsla sem einnig er með skolvask með heitu og köldu vatni og hitaveitu.
30 fm gámur, einangraður bæði að innan og utan með tveimur geymslurýmum. Annað er mjög rúmgott en hitt flott 5 fm geymsla.
Skipt var um klæðningu og lagnir endurnýjaðar eða yfirfarnar 2023 á aðal húsi og þak málað 2022 á aðal húsi og bílskúr. Nýlega var skipt um þakkant á aðalhúsi og sett innfelld lýsing.
Allsstaðar eru pallar/verandir milli húsa (alls 3 pallar) sem nýtast allir mjög vel.
Einstakt tækifæri á ferðinni fyrir þá sem vilja upplifa sveit í borg og njóta alls þess besta sem landið hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, á netfanginu alli@trausti.is. Bókið skoðun hjá Önnu í síma 864-1612