Föstudagur 3. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 25. júlí 2024

Kelduhvammur 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
139.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
658.781 kr./m2
Fasteignamat
81.050.000 kr.
Brunabótamat
72.770.000 kr.
Mynd af Unnur Svava Sigurðardóttir
Unnur Svava Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2076826
Landnúmer
121364
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlegar ofnalagnir og ofnar að hluta, ótengdur ofn á baðherbergi
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta/ekki vitað að hve miklu leyti
Frárennslislagnir
Upprunalegar/ekki vitað
Gluggar / Gler
Norður gluggar í stofu og baðherbergisgluggi voru endurnýjaðir 2022, gler í stærsta suður stofuglugga endurnýjað okt 2024.
Þak
Viðgerð og málun á þaki, þakkanti (járnklæðningu) og skipt um rennur (sept 2025)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suð-vestur
Upphitun
hitaveita, hitagrind endurnýjuð okt 2025.
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
/ Athugasemdir:
* Rispa í parketi í stofu út í horni þar sem sófinn er yfir. 
* Mjó sprunga í lofti stofu.
* Lítil sprunga sjáanleg í horni í lofti inn í stofu. Fyrri eigandi sagði að þar hefði komið leki sem er búið að lagfæra. Sprungan hefur ekkert breyst þann tíma sem núverandi eigandi hefur átt eignina. 
* Ath., skv. upplýsingum sem fyrri eigendur fengu þá var grunnskipulagi eignarinnar breytt út frá upphaflegu teikningu, þar sem þvottahús var fært til og útbúið herbergi þar sem það var áður.  
Sjá nánar í ástandsskýrslu seljenda dags. 2.4.2026.
Fasteignasalan TORG kynnir:
Vel skipulögð og björt neðri sérhæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu í Hafnarfirði. Eignin í heild er skráð 139,5 fm, og skiptist í íbúð á hæð 117,0 fm og bílskúr 22,5 fm. 
Eignin skiptist í forstofu, hol, opið eldhús og rúmgóða borðstofu og stofu með góðu útsýni til norðurs. Frá holi er einnig gengið inn á herbergisgang þar sem eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og innangengur skápur. Þvottahús er innaf eldhúsi og geymsla er í óskráðu rými undir bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is.


Nánari lýsing: 
Forstofa: Sérinngangur er í íbúðina, í forstofu er flotað gólf.
Hol: Opið hol með fataskáp.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi. Parket á gólfi.
Þvottahús: Innaf eldhúsi. Innrétting fyrir þvottavél- og þurrkara í vinnuhæð. 
Stofa- og borðstofa: Mikið og fallegt útsýni í átt að gamla bænum í Hafnarfirði og að Esju. Frá stofu er gengið út á svalir sem snúa í suð-vestur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápar.
Herbergi II: Parket á gólfi
Herbergi III: Parket á gólfi og fataskápur.
Innangengur fataskápur: Innaf herbergisgang er innangengur fataskápur með miklu skápaplássi.
Bílskúr: með rafmagni, heitu- og köldu vatni og er staðsettur fjær aðalinngang til vinstri séð út frá götu. 
Sameiginlegt óskráð geymslurými er staðsett undir bílskúr, þar sem geyma má hjól o.fl. 

Björt og vel skipulögð sérhæð í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu. Þrjú svefnherbergi á sér herbergjagangi. Sérinngangur og bílskúr. Mikið og fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is.


Að sögn fyrri eiganda hefur eignin fengið eftirfarandi viðhald: 
Árið 2024: Settur nýr ofn inn í stofu í apríl. Svalir múraðar og svalagólf málað í maí.
Árið 2023: Brenndur var pappi á bílskúrsþakið um sumarið, þá voru tröppur múraðar um sumarið. 
Árið 2022: Skipt var um norðurglugga í stofu og inn á baðherbergi sumarið 2022.
Útveggir eignar málaðir um sumarið. 
Ártal óþekkt: Eldhúsið endurnýjað, parketlagt í eldhúsi og stofu, ásamt því að þvottahús var fært til og auka herbergi útbúið í rýminu þar sem þvottahús var áður.
Að sögn núverandi eiganda hefur eignin fengið eftirfarandi viðhald:
Okt 2025: Ofnalagnir og ofnar svefnherbergisálmu endurnýjaðir.
Okt 2025: Hitagrind í hitakompu húss endurnýjuð
Sept 2025: Viðgerð og málun á þaki, þakkanti (járnklæðningu) og skipt um rennur.
Okt 2024: Gler stærsta suður stofuglugga endurnýjað.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar og eru eftirfarandi lyklar til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/09/202473.600.000 kr.82.000.000 kr.139.5 m2587.813 kr.
29/08/202252.300.000 kr.78.000.000 kr.139.5 m2559.139 kr.
20/06/201734.300.000 kr.43.250.000 kr.139.5 m2310.035 kr.
17/09/200722.480.000 kr.27.200.000 kr.139.5 m2194.982 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1967
22.5 m2
Fasteignanúmer
2076826
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.370.000 kr.
Byggt 1967
Fasteignanúmer
2076826
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.150.000 kr.

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blikahólar 10
Skoða eignina Blikahólar 10
Blikahólar 10
111 Reykjavík
93.2 m2
Fjölbýlishús
413
748 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 5
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 5
Asparlaut 5
230 Reykjanesbær
240.6 m2
Fjölbýlishús
735
540 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
162 m2
Fjölbýlishús
413
555 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Úlfarsbraut 98
Bílastæði
Opið hús:08. apríl kl 17:30-18:00
Skoða eignina Úlfarsbraut 98
Úlfarsbraut 98
113 Reykjavík
132.1 m2
Fjölbýlishús
413
776 þ.kr./m2
102.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin