Vönduð og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi í við Hlíðarenda.
** EFSTA hæð
** Þrjú svefnherbergi
** Vandaðar innréttingar
** Frábær staðsetning
** Byggt 2020
** Stæði í bílakjallaraNánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson lgf. S: 775-4000 palli@palssonfasteignasala.is
Þorbirna Mýrdal Lgf. í síma 888-1644 eða thorbirna@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.iswww.verdmat.isGóð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. Þjóðskrá Íslands er 133,9 m2, þar af geymsla 19,1 m2.
Íbúðin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, baðherbergi, eldhús, stofa/borðstofa, þrjú svefnherbergi, geymsla og stæði í bílakjallara. Svalir út frá stofu.Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með fataskáp. Parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, með fallegri innréttingu, flísalagt og með gólfhita, handklæðaofni og góðum sturtuklefa.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu fyrir vélar.
Eldhúsið er í opnu og björtu rými saman með stofu/borðstofu. Eldhús er með hvítri innréttingu, innbyggður ísskápur, uppþvottavél og helluborð. Góður ofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Stofan er opin og björt og gengið er út á
svalir til suðurs úr stofunni. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskápum. Parket á gólfi.
Sameign er afar snyrtileg. Stór og rúmgóð
vagna-/hjólageymsla er í sameign auk þess sem eigninni fylgir
rúmgóð geymsla (19,1 m2) með aukinni lofthæð og
merktu stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2020) sem stendur í klasa húsa sem byggður er umhverfis
inngarð sem er notalegur, fjölskylduvænn reitur.Frábær staðsetning í nýju hverfi við Hlíðarenda í hjarta Reykjavíkur. Stutt er í miðbæinn, útivistarsvæði í Öskjuhlíðinni og Nauthólsvík og verslunar- og þjónustusvæði í Kringlunni.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.