PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð ásamt bílastæði í bílahúsi að Flúðaseli 91 í Reykjavík. Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Alrými eignarinnar er opið og bjart. Járn á þaki hefur verið endurnýjað sem og gluggar. Farið hefur verið í múrviðgerðir og húsið málað að utan. Búið er að endurnýja heita og kaldavatnsinntak fyrir stigagangin ásamt því að hitaveitugrind hefur verið endurnýjuð. Dyrasýmakerfi með myndavél. Eitt stæði í bílahúsi fylgir eigninni, þar er einnig góð þvottaaðstaða. Skv. fasteignamati er íbúðin skráð 105,8 m
2, þar af er geymsla 7,4 m
2. Bílastæði er ekki inni í fermetra skráningu eignarinnar.
Nánari lýsing eignar:
Andyri með parketi á gólfi og fataskáp.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir.
Eldhús með flísum á gófi. Þar er stílhrein hvít innrétting með flísum á milli skápa, gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfi, skápar eru í tveimur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er svört innrétting, upphengt salerni, baðkar og sturtuklefi.
Þvottahús með epoxy á gólfi. Nýleg innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél/ þurrkara í vinnuhæð.
Sér
geymsla fylgir eigninni, þar er málað gólf. Í sameign er sameiginleg hjólageymsla.
Bilastæðahús hefur verið töluvert endurnýjað, árið 2024 að utan og 2026 að innan. Búið er að drena með því, einangra og mála að innan ásamt því að endurnýja hitakerfi. Þak hefur verið lagað. Einnig er búið að leggja fyrir rafmagnsleiðslu.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í sima 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða hakon@prodomo.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.