Sunna fasteignasala, Arnþór Jónsson viðskiptafr. og aðstoðamaður fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Bræðratungu 24, 200 Kópavogur.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða 162,3 m2 útsýnis- fjölskyldueign á tveimur hæðum með bílskúr, staðsetta á eftirsóttum stað í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin býður upp á bjartar og rúmgóðar stofur með miklu útsýni til suðurs. Timburpallar eru bæði að framanverðu (suður) og aftan við eignina sem skapa góða aðstöðu til útivistar og samveru.
Herbergin eru rúmgóð og góð geymsluaðstaða fylgir eigninni, þar á meðal rúmlega 20 m² sérgeymsla undir húslengjunni auk stórs sameiginlegs rýmis sem nýtt er sem hjólageymsla.
Staðsetningin er fjölskylduvæn og stutt í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Einnig er örstutt í Kópavogsdalinn, eitt stærsta og vinsælasta útivistarsvæði bæjarins með fjölbreyttum hjóla- og göngustígum.
***Laus við kaupsamning***
Nánari lýsing
Neðri hæð
Komið er inn snyrtilega flísalagða forstofu með rúmgóðum fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í flísalagt hol sem opnast inn í bjarta og parketlagða stofu. Borðstofa á efri palli með parketi á gólfi og glervegg á milli rýma.
Eldhús er með ljósri innréttingu, góðum tækjum og flísum á gólfi. Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús með góðu skápaplássi og flísalögðu gólfi. Úr þvottahúsi er útgengt út á stóra og fallega afgirta timburverönd með góðu skjóli og aðstöðu til útiveru.Inn af forstofu er snyrtilegt gestasalerni.
Efri hæð
Parketlagður stigi með stálhandriði liggur upp á efri hæð. Gangur er parketlagður.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu fataherbergi með rennihurð og parketi á gólfi. Barnaherbergi er stórt og bjart, í dag gert úr tveimur herbergjum og með parketi á gólfi.
Mikið útsýni til suðurs frá stofu og efri hæð.
Baðherbergi með ljósri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með glervegg. Gólf og veggir eru flísalagðir.
Kjallari og geymslur
Á jarðhæð er 20,7 m² geymsla, auk kaldri geymslu og sameiginlegs rýmis sem er nýtt sem hjólageymsla. Þar hefur verið málað og rafmagn endurnýjað. Gluggar í kjallara nýlegir samkv. seljanda.
Lóð og utanhúss
Framan við húsið er timburverönd sem snýr til suðurs með góðum skjólveggjum. Timburskjólveggur er á milli húsa/íbúða.
Við enda hússins og að framanverðu er malbikað bílastæði.
Bílskúr
Við enda hússins er rúmgóður 27,2 m² bílskúr í góðu ástandi.
Talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum, meðal annars:
• 2013: Nýtt rafmagn og rafmagnstafla.
• 2015: Rafmagn í sameign endurnýjað.
• 2016: Nýtt þak á bílskúr. Steypuviðgerðir á framhlið
• 2017: Timburpallar smíðaðir að framan og aftan.
• 2018: Skipt um glugga í stofu og nýjar steyptar tröppur að framan.
• 2023: Allt skólp endurnýjað (fóðrað frá nr. 24 og í brunn), dren lagt og ný kaldavatnsinntök sett upp.
• 2024: Nýir gluggar í svefnherbergi, ný hurð í kjallara og nýjar rennur og niðurföll.
• 2025: Húsið sprunguviðgert. Ný hurð í kjallara
Nánari upplýsingar veitir Arnþór Jónsson viðskfr. og aðstoðarm. fasteignasala. í síma 663 3030 og netfanginu arnthor@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.