Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herb. efri hérhæð að Borgarholtsbraut 29 í Kópavogi. Íbúðinni fylgir bílskúr. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og eru S-svalir út frá stofu. Garðurinn er mjög vel hirtur og fallegur og undir hellulögðu bílaplani er snjóbræðsla. Einnig í útidyratröppum. Hverfið er einstaklega fjölskylduvænt og vinsælt. Göngufæri er í leik- og grunnskóla sem og sundlaug og helstu verslanir og þjónustu. Einnig er örstutt á skemmtileg leiksvæði.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 136,6 m2.**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN! Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:Forstofa er inn af nýviðgerðum útidyratröppum með snjóbræðslu (rafmagn). Innan íbúðar er komið inn á flísalagt gólf með ljósgráum gólfflísum. Hvítir skápar ná upp í loft og skúffur undir bólstruðum bekk. Inn af forstofu er þvottahús og geymsla.
Eldhús og borðstofa er nú eitt og sama rýmið og hefur allt verið endurnýjað. Eldhúshinnrétting spannar nú yfir stærra svæði og þar sem eru efri skápar, ná þeir upp í loft. Innrétting er hvít og borðplötur úr við. Veggir eru að hluta flísalagðir. Ný tæki og innfelldur ísskpur, frystir og uppþvottavél. Einnig eru hyrslur undir háu eldhúsborði sem setið er við í háum stólum. Parket á gólfi flæðir einnig inn í stofu, svefnherbergisgang og herbergi.
Stofa björt með stórum gluggum til suðurs með útsýni til fjalla. Parket á gólfi. Út frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir sem ná einnig fyrir hjónaerbergi, en þar er einnig svalahurð.
Herbergisgangur er parketlagður og eru allar hurðar nýjar.
Herbergi I er annað barnaherbergjanna og vísar gluggi á því herbergi út að svölum. Parket á gólfi
Herbergi II er stærst herbergjanna og er með stórum opnum skápum á einum vegg. Parket á gólfi. Útgengi er út á svalir frá herberginu.
Herbergi III er rúmgott barnaherbergi. Gluggi snýr í austur. Parket á gólfi.
Baðherbergi var gert upp fyrir nokkrum árum. Upphengt salerni, grá innrétting undir handlaug, veggfestur skápur, þreplaus sturta með glervegg og hvítur handklæðaofn. Gráar gólfflísar og upp salerniskassa og hvítar veggflísar inni í sturtu.
Þvottahús og geymsla er inn af forstofu og er nú eitt og sama rýmið. Nýleg innrétting á einum vegg með vaski og borðplötu. Á langvegg er opin skápaeining. Ljósar gólfflísar eins og í forstofu. Lúga er upp í þakrými.
Geymsla er einnig undir neðri stigapalli. Eins er lagnarými húss undir efri stigapalli.
Bílskúr er skv. Þjóðskráryfirliti 23,1 m2 (birt flatarmál). Sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari. Opið er á milli bílskúrs efri og neðri hæðar. Gólf er steypt. Innst í bílskúr er sér afmarkað rými með gluggum út í garð. Framan við bílskúr er steypt bílaplan.
Garður er snyrtilegur og hefur verið vel við haldið. Að hluta til er grasflötur, að hluta hellulögn og eru matjurtarreitir afmarkaðir með kvistum. Einnig eru snúrustaurar.
Endurbætur:Húsið er steinsteypt og skv. upplýsingum frá íbúum í húsinu var það síðar klætt með steinplötum. Einnig hefur verið skipt um þakjárn og síðast var það yfirfarið 2010. Að sögn fyrri eiganda hafa skólplagnir verið fóðraðar undir húsinu og út í brunn og salrenisstammi verið endurnýjaður. Innan íbúðar var búið að fara yfir rafmagn að hluta (þvottahús, baðherbergi og hjónaherbergi) af fyrri eiganda og skipt um alla tengla og rofa í íbúðinni. Einnig var búið að skipta um ofna. Núverandi eigendur drógu nýtt rafmagn í eldhúsi, endurnýjuðu innréttingu og öll tæki, lögðu nýtt parket (þykkan dúk og parket) og endurnýjuðu allar innihurðar (Birgisson). Einnig var bekkur í forstofu endurnýjaður, sérsmíðaður inn í rýmið og er áklæðið eins og á eldhússtólum. Allt gert árið 2022.
Árið 2024 voru tröppur úti gerðar upp og múrhúðaðar.
KársnesskóliLeikskólinn KópasteinnKópavogslaugKópavogskirkja-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-