Fimmtudagur 25. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:29. júní kl 17:00-17:30
Skráð 25. júní 2026

Þverbrekka 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
69.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
939.219 kr./m2
Fasteignamat
65.850.000 kr.
Brunabótamat
53.880.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2360818
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Frá því að húsið var byggt
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Nýtt á skrá! Þverbrekka 8 Kópavogi - Glæsileg og rúmgóð íbúð með svölum til suðurs og sérinngangi af svalagangi. Nýleg íbúð frá 2017 með bílastæði í bílakjallara og geymslu beint inn af bílastæði.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega, rúmgóða og vel skipulagða 2ja herbergja 69,1 fermetra íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli við Þverbrekku í Kópavogi. Íbúðin er með rúmgóðum svölum til suðurs inn í bakgarð og sérbílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Þvottaaðstaða innan íbúðar. Sérgeymsla sem er 5,6 fermetrar í kjallara, staðsett við bílastæði í bílakjallara. 

Húsið er afar fallegt byggt árið 2017, klætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Malbikuð bílastæði fyrir framan hús. Malbikuð sameiginleg stæði fyrir framan hús. 

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu við Þverbrekku í Kópavogi. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Stutt er í alla verslun, þjónustu og samgöngur.

Lýsing eignar:

Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Gangur: Með harðparketi á gólfi og mjög góðu skápaplássi.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. AEG stál bakaraofn og helluborð. Tengi fyrir uppþvottavél og útloftun. 
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs og útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum á heilan vegg sem ná upp í loft og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask og speglaskápur. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. Tengi fyrir þvottavél og vinnuborð.

Bílastæði: Er vel staðsett í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Afar snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir bílhleðslustöðvar.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett í kjallara sem er 5,6 fermetrar að stærð og staðsett við bílastæði í bílakjallara.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og byggt árið 2017. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir, steyptar stéttar og malbikuð bílaplön.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/02/202560.300.000 kr.59.000.000 kr.69.1 m2853.835 kr.
14/03/201834.700.000 kr.39.900.000 kr.69.1 m2577.424 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2017
Fasteignanúmer
2360818
Byggingarefni
Steypt

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10 -303
Bílastæði
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Hafnarbraut 10 -303
200 Kópavogur
117.6 m2
Fjölbýlishús
423
935 þ.kr./m2
109.990.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 32
IMG_1670.JPG
Skoða eignina Kleppsvegur 32
Kleppsvegur 32
105 Reykjavík
59 m2
Fjölbýlishús
2
958 þ.kr./m2
56.500.000 kr.
Skoða eignina Langalína 15
3.jpeg
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
83 m2
Fjölbýlishús
211
902 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 -302
Bílastæði
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Hafnarbraut 10 -302
200 Kópavogur
131.5 m2
Fjölbýlishús
423
935 þ.kr./m2
122.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin