Helgafell fasteignasala kynnir tveggja herbergja íbúð í lyftuhúsi með góðri lofthæð með miklu útsýni við Kirkjustétt 4 í Grafarholti.Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð með stórum svölum á eftirsóttum stað í Grafarholtinu.
Íbúðin er björt og rúmgóð með góðri lofthæð sem skapar opið og notalegt rými.
Byggt var ofan á húsið fyrir nokkrum árum og var þá á sama tíma skrifstofuhúsnæði breytt í íbúðir á snyrtilegan hátt.Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús með eyju, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
Úr stofu er útgengt á svalir til norðvesturs með góðu útsýni.
Næg bílastæði eru við húsið og sameiginleg vagna- og hjólageymsla í húsinu.
Um er að ræða vel staðsetta og snyrtilega eign þar sem húsfélag heimilar dýrahald. Samkvæmt eiganda er húsið í góðu ástandi.Nánari lýsing:Forstofa með harðparketi og stórum fataskáp.
Geymsla er innan íbúðar og hægt að nota sem líka sem vinnuherbergi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og fallegri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er með hvítri háglansinnréttingu, góðu skápaplássi og eyju sem hægt er að sitja við. Innbyggð tæki og vönduð vinnuaðstaða.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með útgengi á svalir. Mikil lofthæð stækkar rýmið verulega.
Svefnherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Svalir eru stórar og snúa í norðvestur - góð kvöldsól og mikið útsýni af svölum.
Húsið er á þremur hæðum með 19 íbúðum í einu stiga- og lyftuhúsi.
Á jarðhæð er aðalinngangur byggingarinnar frá bílastæði að norðanverðu, tæknirými, hjóla- og vagnageymsla.
Í húsinu er lyfta. Á jarðhæð eru verslunar og þjónustuhúsnæði t.d. bakarí, heildverslun, hárgreiðslustofa og fleira.
Burðarkerfi byggingarinnar er staðsteypt tvær hæðir og 3. hæð byggð úr timbri.
Húsið er einangrað með steinull og klætt með álklæðningarkerfi sem veðurkápu.
Staðsetning:Eignin er á vinsælum stað í Grafarholtinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í göngufæri eru leik- og grunnskólar, verslanir og almenningssamgöngur. Nánasta umhverfi býður upp á falleg útivistarsvæði, m.a. við Úlfarsfell, Elliðaárdal og Grafarholtsvöll.
Verslun og þjónusta er á fyrstu hæð í sama húsi, s.s. hárgreiðslustofa og bakarí.
Linkur á teikningar af Kirkjustétt 4
hérOpnaðu söluyfirlit fyrir eignina
hérFyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is