Til leigu hjá Reitum: Nýtt atvinnuhúsnæði í nýju vistvottuðu atvinnuhverfi á svokölluðum E- reit. Á E-reit má finna fjölbreytt leigurými frá 230 m2 og upp í 2.100 fermetra. Heildar fermetrar húsnæðis á E-reit er um 13.600 m2. brúttó.
Korputún er skipulagt út frá BREEAM Communities vistvottunarstaðlinum sem tryggir að hverfið er hannað út frá þörfum fólks og náttúrunnar ekki síður en út frá hefðbundnum þáttum s.s. aðgengi, vöruflutningum og sýnileika.
Hverfið er vel í sveit sett og nýtur góðs sýnileika, um 30 þúsund bílar fara um Vesturlandsveg daglega. Norðvestan við Korputún er 3.500 til 3.700 íbúða hverfi í skipulagsferli, áætla mætti að íbúar þar verði um sjö þúsund.
Borgarlína ásamt nýrri hjóla- og gönguleið er áformuð þvert gegnum hverfið með Borgarlínustöð fyrir framan verslunarkjarnann.Samgöngumiðað skipulag tryggir gott aðgengi gangandi og hjólandi.
Áætluð afhending á húsnæði tilbúnu til innréttingar með fullfrágengnu ytra byrði og lóð á Q4 2028.
Allar nánari upplýsingar um húsnæði í Korputúni má finna á
www.korputun.isAuðunn Sólberg veitir nánari upplýsingar í síma 770 1018 eða í netfanginu audunn@reitir.is.Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987. Innan eignasafnsins eru á annað hundrað fasteignir auk metnaðarfullra þróunarverkefna. Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar.Tegund: skrifstofurými, verslunarrými, Lager & iðnaður
Afhending: Afhending samkomulag
ID:11