Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Valshlíð 16, 102 Reykjavík, íbúð 228 á tveimur hæðum og bílskúr. Nánar tiltekið eign merkt 02-28, fastanúmer 250-9122 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð eignarinnar er 173.0 fm. hjá FMR, sem skiptist í 72,8m2 neðri hæð, 69,3fm efri hæð ásamt sérgeymslu í bílakjallara inn af bílskúr nr. 164, birt stærð 30,9fm eða samtals 173fm.
Að auki er44.8m2 LOKAÐ stæði í bílageymsluhúsi, merkt C20, sem telur EKKI í fermetrafjölda íbúðar. Lofthæð í bílskúr og geymslu er um fimm metrar, sem gefur möguleika á millilofti. Raunstærð eignarinnar er því u.þ.b. 217,8fm.
Einstakt, vel staðsett og mjög vandað fjölbýlishús með lyftu við Hlíðarenda. Eignin er í útleigu með trausta leigjendur, möguleiki að taka við leigusamning fyrir nýjan eiganda.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í íbúðina úr sameiginlegum innigarði á 2. hæð. Inngarðurinn er skemmtilegt sameiginlegt svæði m.a. með bekkjum, grasi, timburpalli, göngustígum og leikvelli. Aðgengi að bílakjallaranum er einnig frá sameiginlegu svæði en einnig frá stigagangi.
Í anddyri eru innbyggðir skápar. Hjónabergi með stórum og rúmgóðum innbyggðum skápum. Útfrá svefnherberginu er aðgengi að sólpalli sem snýr inn í garðinn.
Á neðri hæð er rúmgott baðherbergi með sturtu og upphækkaðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Í eldhúsi er eyja, með Quartz borðplötu, bakaraofn og spanhelluborð frá Miele og háfur frá Elica. Gengið út á inndregnar svalir úr eldhúsi sem snúa út að götu og má sjá æfingarsvæði Vals frá svölunum.
Ljóst harðparket frá Parka á öllum gólfum í alrými og svefnherbergjum, gráar flísar á baðherbergjum, á gólfi og tveimur veggjum. Allar innréttingar frá JKE (Byko) með dökkri viðaráferð. Hvítt teppi frá Parka á stiga milli hæða.
svalir og sólpallar eru klæddir með lerki á gólfi. Gólfsíðir gluggar í allri íbúðinni.
Á annarri hæð eitt stærra svefnherbergi og annað minna herbergi með litlum svölum, innbyggðum að hluta sem sem snúa út í garðinn. Rúmgóð stofa/alrými sem notað er sem sjónvarpshol.
Í bílakjallara er u.þ.b. 45 fermetra bílskúr, með innkeyrsluhurð, og inn af henni 30 fermetra geymsla. Búið er að leggja epoxy efni á gólfið í bílageymslu og teppi í geymslunni. Hátt til lofts í bílskúr og geymslu eða u.þ.b. 5 metrar og því möguleiki á að setja upp milliloft. Bílskúrinn er nokkuð rúmgóður og mögulegt að koma fyrir tveimur bílum í bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björnsson Hrl. og lögg.fast, í síma 8943209, tölvupóstur oli@olafur.is. og Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfr. og nemi til lögg. fasteignasala. s: 6956134, kristo@olafur.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 50.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.