Föstudagur 18. október
Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2024
Deila eign
Deila

Öndverðarnes 2

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
62.1 m2
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
803.543 kr./m2
Fasteignamat
30.500.000 kr.
Brunabótamat
25.000.000 kr.
Mynd af Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Garður
Fasteignanúmer
2208686
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
í lagi að sögn seljanda
Raflagnir
Í lagi að sögn seljenda
Frárennslislagnir
í lagi að sögn seljanda
Gluggar / Gler
í lagi að sögn seljenda
Þak
Í lagi að sögn seljenda
Svalir
á ekki við
Upphitun
Hitaveita
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs kynna ákaflega fallegt sumarhús ásamt einu minna gestahúsi á stórri lóð í Grímsnesinu, nánar tiltekið í Öndverðarnesi 2, einungis 40 mínútur frá Reykjavík. Aðalhúsið er skráð 62,1 fm í Þjóðskrá Íslands en núverandi eigendur byggðu við húsið og er að nú um 68 fm, minna húsið er rétt undir 15 fm. Bæði húsin eru klædd með standandi lerkiklæðningu sem er mjög falleg og viðhaldslítil. Lóðin er um 4.400 fm og vel gróin háum trjám og lággróðri. Staðsetning húsanna tryggir auðvelda aðkomu allt árið en einkavegur liggur að húsunum sem hægt er að loka með lás. Heitur pottur er við aðalhúsið og stór pallur sem umlykur það. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á hallgrimur@trausti.is

Nánari lýsing eigna:
Aðalhús
Gengið er inn í rúmgott anddyri sem núverandi eigendur bættu við húsið. Viðargólf og veggir.  
Komið er inn á stuttan gang þar sem baðherbergi er fyrst á vinstri hönd.
Baðherbergið er með sturtuklefa og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi. 
Minna herbergi er með parketi á gólfi. 
Eldhúsið, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu alrými með mikið pláss. 
Eldhúsið er með dökkri viðarinnréttingu sem núverandi eigendur settu upp. Uppþvottavél og eldavél eru nýleg. 
Stofan/borðstofa er björt og rúmgóð, hátt til lofts og parket á gólfi. 
Gengið er út úr stofunni út á stóran pall með heitum potti
Gestahús
Um það bil 15 fm með litlu salerni og eldhúskrók, svefnaðstaða fyrir tvo til fjóra, parket á gólfi. Stór viðarpallur við húsið.

Lóðin er  fallega gróin og nýtur sólar vel. Gróið holt er í vestur og suður og birki, greni og aspartré sem hafa náð mikilli hæð. 
Stórt og rúmgott bílastæði, malarborið, er við aðalhús og gestahús.

Hér er eign á ferðinni með mikla möguleika og hugsanlegar útleigueiningar fyrir ferðamenn, á frábærum stað í Grímsnesinu, einungis um 10 mínútur frá Selfossi og 40 mínútur frá Reykjavík. Stuttur einkavegur liggur af Biskupstungnabraut sem tryggir gott aðgengi allt árið. Þrastalundur er í tveggja mínútna fjarlægð og mikið um fallega staði og þjónustu í nágrenninu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á hallgrimur@trausti.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hofsvík 7
Skoða eignina Hofsvík 7
Hofsvík 7
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
322
676 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsvík 2
Skoða eignina Hofsvík 2
Hofsvík 2
805 Selfoss
73.8 m2
Sumarhús
322
676 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Öndverðarnes 2
Skoða eignina Öndverðarnes 2
Öndverðarnes 2
805 Selfoss
80 m2
Sumarhús
423
624 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Seljaland 10
Skoða eignina Seljaland 10
Seljaland 10
840 Laugarvatn
49.8 m2
Sumarhús
32
1002 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin