Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu einstaklega glæsilegt, vel hannað og töluvert endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr á rólegum og eftirsóttum stað við Njörvasund í Reykjavík. Húsið sem er með aukinni lofthæð að hluta er teiknað af Guðmundi Kr. Kristinssyni og stendur á fallegri lóð með góðri aðkomu, hellulögðu bílaplani, viðarverönd, tyrfðum flötum, fallegum trjágróðri og gróðurhúsi.
Húsið hefur vakið athygli fyrir einstaka hönnun arkitekst og hafa eigendur haldið í það varðandi efni og litaval við endurbætur.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að á liðnum árum samkvæmt seljendum og meðal annars:
- Ný girðing 2024.
- Þakjárn ásamt rennum 2022.
- Rafmagn nýtt inntak, dregið nýtt í töflu og húsið.
- Húsið múrgert og málað 2020.
- Frárennsli 2010
- Húsið drenað og garður endurgerður og settur hiti í stétt 2010
Einnig hafa allar hurðar að innan verið endurnýjaðar ásamt baðherbergi aðalhæðar. Gengheilt parket er á allri eigninna að undanskildum votrýmum.
Eignin er sýnd skv. samkomulagi. Bókið einkaskoðun í s: 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð með hita í gólfi og fatahengi.
Gangur, parketlagður.
Eldhús, parketlagt, hiti í gólfi með Alno inréttingu, flísalagt á milli skápa og góðri borðaðstöðu með áföstu borði. Ný tæki eru í eldhúsi, ofn í vinnuhæð, ásamt örbylgjuofn, stórt spanhelluborð, innbyggður stór ísskápur og uppþvottavél.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, hiti í gólfi, upphengt wc, innrétting, flísalögð sturta með sturtugleri.
Hol, parketlagt, var áður herbergi og auðvelt að gera aftur.
Herbergi l, parketlagt með fataskáp.
Herbergi ll, parketlagt með nýjum fataskáp og útgengið í garð.
Borðstofa, parketlögð hiti í gólfi, opin við stofu og hol, útgengið á viðarverönd og í garð.
Stofa / sjónvarpsstofa, parketlögð, rúmgóð og gengið upp tröppur frá borðstofu, er með gólfsíðum gluggum að hluta og arinn.
Gengið er niður á neðri hæð um parketlagðan stiga með lýsingu.
Hol, parketlagt.
Herbergi lll, parketlagt með fataskáp og gluggum í tvær áttir.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, sturtuklefi og innrétting.
Inn af baðherbergi er hitakompa og geymsla með glugga.
Þvottaherbergi, rúmgott með glugga og útgengið á lóð, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar, gott vinnuborð og vaskur.
Bílskúr, 26,3 fermetrar að stærð, er með rafhleðslustöð, hita, heitu og köldu vatni, rafknúinni innkeyrsluhurð, gönguhurð á hlið og kaldri útigeymslu við enda sem er ekki í fermetratölu bílskúrs.
Húsið að utan lítur mjög vel út og hefur alla tíð fengið mjög gott viðhald.
Lóðin, er 832,0 fermetrar að stærð er fullfrágengin og mjög glæsileg. Á framlóð eru stór hellulögð innkeyrsla að bílskúr, hellulögð stétt með hitalögnum í gönguleið og stigapalli, tyrfð flöt, trjábeð, viðarverönd og gróðurhús.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað í botlanga í Voga / Sundhverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.