Laugardagur 25. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 24. apríl 2026

Sæviðarsund 54

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
230.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
650.325 kr./m2
Fasteignamat
147.250.000 kr.
Brunabótamat
104.000.000 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2018232
Landnúmer
104383
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt í húsi, lagt nýtt út í götu.
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Ekki upprunalegt en þarfnast skoðunar.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita / ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Erling Proppé.lgf & REMAX kynna fallegt og vel skipulagt raðhús sem býður upp á mikla möguleika á frábærri staðsetningu miðsvæðis við Sæviðarsund 54, 104 Reykjavík.

Sæviðarsund 54 er virðulegt raðhús frá árinu 1967, íbúðarrými og bílskúr 162,5 m2, óinnréttuð efri hæð 68 m2, samtals 230,50 m². Húsið er staðsett í rótgrónu hverfi í Reykjavík og býður upp á björt og rúmgóð rými á aðalhæð með góðri lofthæð, fjórum svefnherbergjum baðherbergi og gestasalerni. Þakinu var lyft fyrir nokkru síðan, í dag er það óklárað og fokhelt, skráð 68 m² að grunnfleti en töluvert stærra að grunnfleti vegna súðar. Þetta rými býður upp á einstök tækifæri til að fullklára og nýta sem viðbótarrými við húsið með tengingu á milli hæða.

Allar nánari upplýsingar veitir Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is

Eignin skiptist í björt og opin alrými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, búr, bílskúr og óinnréttaða efri hæð.

Anddyri
Flísar á gólfi og góðir fataskápar með hirslum fyrir yfirhafnir.

Gestasalerni
Flísalagt með hvítum flísum á veggjum og gólfi, með handlaug og salerni.

Herbergi I
Rúmgott herbergi með aðgengi úr anddyri með dúk á gólfi sem nýst hefur sem skrifstofa, með stórum gluggum, hillum og skápum.

Alrými/sjónvarpsstofa
Rúmgóð og björt stofa sem nýst hefur sem sjónvarpsrými, parketi á gólfi og viðarklæðning í lofti sem gefur hlýlegt yfirbragð. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn.

Eldhús
Eldhúsið er með eldri en vel hirtrri innréttingu. Ljósgrænir neðri skápar með viðarlistum, hvítir efri skápar og grænar flísar á milli skápa. Ofn með helluborði, pláss fyrir tvo ísskápa, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur. Gluggar veita góða dagsbirtu og útsýni til umhverfisins.

Borðstofa
Borðstofa tengist stofunni í opnu rými og er með parketi á gólfi og viðarklæðningu í lofti. Hér er gott pláss fyrir stórt borðstofuborð sem rúmar fjölskyldu og gesti.

Stofa með útgengi út í garð
Sérlega bjart og notalegt rými með stórum og miklum gluggum sem snúa út í garð. Hér er útgengi út á hellulagða verönd í bakgarði. Parket á gólfi.

Svefnherbergisálma:

Svefnherbergi II / Hjónaherbergi
Bjart og rúmgott herbergi með fataherbergi, dúkur á gólfum.

Svefnherbergi III
Bjart herbergi með dúk á gólfi og þreföldum skápum.

Svefnherbergi IV
Bjart herbergi með dúk á gólfi og þreföldum skápum.

Baðherbergi
Flísalagt baðherbergi með sérstæðum bláum flísum með mynstri á veggjum. Innrétting með handlaug, upphengdu salerni, handklæðaofn, baðkari og sturtu.

Þvottahús
Þvottahús með flísum á gólfi, vaskur, góðir skápar og vinnupláss. 

Bílskúr
Er 22,7 m2, notaður aðallega sem geymsla í dag. 

Efri hæð / Óinnréttað rými
Stórt og óklárað rými með frábæru útsýni yfir Faxaflóan og Esjuna er að finna á efri hæð, aðgengi úr bílskúr. Þakinu var lyft fyrir nokkru síðan og er þetta rými skráð 68 m² í heildarfermetrum eignarinnar, þó grunnflötur sé töluvert stærri vegna rýmis undir súð. Það býður upp á mikla möguleika til að innrétta aukarými, t.d. fleiri svefnherbergi og fjölskyldurými með því að opna á milli hæða.

Garður og umhverfi
Stór og skjólgóður bakgarður með verönd sem snýr í hásuður.

Aðkoma og bílastæði
Góð aðkoma er að húsinu með nægu bílastæðaplássi fyrir framan eignina.

Staðsetning
Staðsetningin er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Sæviðarsundi við Laugardalinn þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, Laugardalslaug, verslun og þjónustu og alla afþreyingu sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Stutt í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Seljandi býr ekki lengur í húsinu í dag, umboðsmenn seljanda þekkja því ekki húsið vel og hvetjum við því alla sem skoða til að kynna sér vel ástand fasteignarinnar og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir. Húsið er selt í því ástandi sem það er í í dag. 

Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir. 

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grandavegur 47
Skoða eignina Grandavegur 47
Grandavegur 47
107 Reykjavík
147.4 m2
Fjölbýlishús
522
834 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Eiríksgata 19
Skoða eignina Eiríksgata 19
Eiríksgata 19
101 Reykjavík
130.4 m2
Fjölbýlishús
422
995 þ.kr./m2
129.700.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2-504 Grensásvegur 4
Opið hús:25. apríl kl 12:00-13:00
Orkureitur D2-504 Grensásvegur 4
108 Reykjavík
127.7 m2
Fjölbýlishús
322
1096 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur D2-304 Grensásvegur 4
Opið hús:25. apríl kl 12:00-13:00
Orkureitur D2-304 Grensásvegur 4
108 Reykjavík
130.3 m2
Fjölbýlishús
322
1028 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin