
Viltu kynnir: Bjarta og fallega 66,8 fm 2ja herbergja íbúð við Rekagranda 1, Reykjavík.
Íbúðin er á jarðhæð í góðu fjölbýli með stórum sólpalli í suður út frá stofu.
Sérlega skemmtileg íbúð á þessum vinsæla stað, stutt í leikskóla, Grandaskóla og íþróttasvæði KR. Grandinn í göngufæri með fjölda veitingastaða og stutt í útivist á Nesinu, einnig í göngufæri við Reykjavíkurhöfn og miðbæinn.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Lýsing íbúðar.
Anddyri með góðum skáp og fatahengi, flísar á gólfi.
Hol með skrifstofu / tölvuaðstöðu, parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með opnum fataskápum, parket á gólfi.
Eldhús opið við stofu með hvítri innréttingu og háu borði með borðaðstöðu, flísar á gólfi.
Búr/geymsla innaf eldhúsi,
Baðherbergi, flísalagt sem búið er endurnýja með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa, björt og rúmgóð með fallegum áföstum hvítum skápum og með útgengi út á afgirtan sólpall.
Í sameign er sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús.
Fjölbýlishúsið er í góðu ástandi. Bílastæði fyrir fram hús.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 15/08/2020 | 36.250.000 kr. | 39.100.000 kr. | 66.8 m2 | 585.329 kr. | Já |
| 15/08/2020 | 36.250.000 kr. | 39.100.000 kr. | 66.8 m2 | 585.329 kr. | Já |
| 14/02/2017 | 27.350.000 kr. | 30.500.000 kr. | 66.8 m2 | 456.586 kr. | Já |
| 14/02/2017 | 27.350.000 kr. | 30.500.000 kr. | 66.8 m2 | 456.586 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
107 | 66,8 | 64,5 | ||
105 | 73,3 | 81,9 | ||
105 | 75,1 | 71,9 | ||
221 | 78,8 | 69,9 | ||
221 | 78,8 | 72,9 | ||
221 | 84,3 | 65,9 |