Sunnudagur 11. maí
Fasteignaleitin
Skráð 9. maí 2025
Deila eign
Deila

Urriðaholtsstræti 9 (103)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
140.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
926.534 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534768_2
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Fyrsta sölusýning - laugardaginn og sunnudaginn 1. - 2. mars klukkan 11:00 - 16:00

--- Glæsileg 4ra herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, tveimur baðherbergjum, þvottaherbergi og afar fallegu útsýni ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.nordurhlid.is - Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Urriðaholtsstræti 9 í Urriðaholti, 210 Garðabæ fyrir 50 ára og eldri. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í jarðhæð. 


Glæsileg sameign (miðrými) eru í húsunum með útsýni að Heiðmörk. Miðrýmið skilast fullbúið með tveimur golfhermum, billiard aðstöðu, æfingasal og hlýlegri setustofu sem er hentug fyrir afslöppun, fundi eða óformlega samveru. Einnig verður eldhúsinnrétting, borð og stólar fyrir veislur, spilakvöld eða öðru líkt þar sem notalegt andrúmsloft ræður ríkjum. Auk þess er þvottaaðstaða fyrir bifreiðar í bílakjallara fyrir íbúa.

Íbúð 103: Er glæsileg 140,2 fermetra fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð með rúmgóðum svölum, tveimur baðherbergjum og þvottaherbergi. Afar glæsilegt útsýni er frá íbúðinni. Rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni sem er 11,6 fermetrar að stærð auk bílastæðis í bílakjallara. Afhending er í júní 2025 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.


Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi (þar af er hjónasvíta með sér baðherbergi), 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á rúmgóðar svalir frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.nordurhlid.is

Húsin eru vel staðsett steinsnar við Heiðmörk. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2534768
Byggingarefni
Steypt
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kinnargata 92
Bílastæði
Skoða eignina Kinnargata 92
Kinnargata 92
210 Garðabær
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
1004 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 3 Íb. 102
Lautargata 3 Íb. 102
210 Garðabær
144.1 m2
Fjölbýlishús
524
895 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 7
Bílastæði
Skoða eignina Langalína 7
Langalína 7
210 Garðabær
147.7 m2
Fjölbýlishús
514
811 þ.kr./m2
119.800.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 3
Skoða eignina Lautargata 3
Lautargata 3
210 Garðabær
144.1 m2
Fjölbýlishús
524
895 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin