Fimmtudagur 5. febrúar
Opið hús:06. feb. kl 15:00-16:00
Skráð 5. feb. 2026

Asparlaut 1-0104

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
78.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
750.318 kr./m2
Fasteignamat
23.800.000 kr.
Byggt 2023
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2529296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
Tvöfalt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sér svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
 ALLT fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar eignir í einu vinsælasta hverfi Reykjanesbæjar: Asparlaut 1, íbúð 0104 er á jarðhæð í fullbúnu, 30 íbúða, nýju fjölbýlishúsi í Hlíðarhverfi. Birt stærð eignarinnar er 78,5 fm. Eigninni fylgir mjög rúmgóð geymsla (9,7 fm). Eignin er vönduð, hefur eitt rúmgott svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu björtu rými þar sem útgengt er út á sólríkar svalir. Góð forstofa. Eignin hefur sér inngang og lyfta er í húsinu.
Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Arkitekt ARKÍS.


Komdu og skoðaðu hvaða íbúð hentar best þínum þörfum.
Mikill áhugi, allt frá fyrstu kaupa eignum upp í stórar fjölskyldu íbúðir.

Nánari upplýsingar veita:
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555 eða unnur@allt.is
Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali, í síma 6986655 eða pall@allt.is
Elínborg Ósk Jensdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 8231334 eða elinborg@allt.is


 Nánari lýsing á íbúð 0104:

Eldhús/borðstofa og stofa: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá GKS. Eldhúsvaskur og blöndunartæki fylgja frá GKS. Bora helluborð með innbyggðu sogi, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur frá Siemens. Virkilega bjart og fallegt rými með innbyggðri lýsingu í loftum, með dimmerum. Afhending er í júlí 2026.

Hjónaherbergi: er með sérsmíðuðum klæðaskápum frá GKS.
Baðherbergi: Á baðherbergi eru flísar frá Flísabúðinni á gólfi og veggjum, innrétting frá GKS. Handlaugarskál með hitastýrðu blöndunartæki, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu. Sturta skilast með innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhlið úr gleri. Niðurfall í gólfi, aðstaða og tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Anddyri: Mjög með sérsmíðuðum klæðaskápum frá GKS
Geymslur: Geymsla í séreign sem fylgir íbúðinni, Rúmgóð vagna og hjólageymsla í sameign.

Umhverfi: Umhverfið um eignina verður mjög skemmtilegt með skjólgóðu miðjusvæði fyrir íbúa. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu og öll helstu íþróttamannvirki, fjölbrautaskóla og útivistarsvæði. Um 25 mínútur frá höfuðborgarsvæði og 5 mínútur frá Flugstöð.
 

Allar eignirnar í húsinu eru ti sölu. Tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir á verðbilinu 54.900.000 - 129.000.000. 

* Innihurðir eru yfirfelldar frá Birgison / Parka
* Útihurðir frá Rational
* Íbúðirnar eru upphitaðar með ofnakerfum
* Loftræsti-, vatns,- og þrifalagnir fylgja frágengnar. Forhitari er á heitu neysluvatni
* Póstkassar verða í stigahúsi
* Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space frá Kone
* Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa, gólf steypt og vélslípað og bílastæði merkt
* Sorpgeymsla verður á sérmerktu svæði á lóðinni
* Það er með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörupappa ofan á steypta plötu. Einangrun er 200mm rakavarin þrýsti einangrun.
* Útiljós og rafmagnstengill er á öllum svölum
* Lóð verður fullfrágengin. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið. Bílastæði eru malbikuð og eða hellulögð.


Íbúðirnar skilast allar án gólfefna á alrýmum og herbergjum en með flísum á votrýmum. Að öðru leyti fullbúnar að innan með fullbúinni útiaðstöðu.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
ALLT FASTEIGNIR ehf
http://www.allt.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut 1-0404
Opið hús:06. feb. kl 15:00-16:00
Skoða eignina Asparlaut 1-0404
Asparlaut 1-0404
230 Reykjanesbær
78.9 m2
Fjölbýlishús
211
759 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1-0304
Opið hús:06. feb. kl 15:00-16:00
Skoða eignina Asparlaut 1-0304
Asparlaut 1-0304
230 Reykjanesbær
80.3 m2
Fjölbýlishús
211
746 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1-0204
Opið hús:06. feb. kl 15:00-16:00
Skoða eignina Asparlaut 1-0204
Asparlaut 1-0204
230 Reykjanesbær
79.9 m2
Fjölbýlishús
211
737 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngholt 10
Skoða eignina Lyngholt 10
Lyngholt 10
230 Reykjanesbær
98.2 m2
Hæð
312
600 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin