Fimmtudagur 6. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:10. ágúst kl 16:15-17:00
Skráð 6. ágúst 2026

Byggðavegur 101f

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
166.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
526.978 kr./m2
Fasteignamat
79.450.000 kr.
Brunabótamat
76.850.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1959
Garður
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2145135
Landnúmer
147240
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Búið er að endurnýja þær að hluta
Raflagnir
Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og stærstan hluta raflagna.
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja hluta af gleri, póstum og opnanlegum fögum.
Þak
Járn á þaki var endurnýjað 2009 skv. yfirlýsingu húsfélags.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar vestur svalir
Upphitun
Hitaveita - gólfhiti er á aðalhæðinni og á baðherbergi á efri hæð. Ofnar eru í öðrum rýmum
Inngangur
Tveir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags dagsetta 9.7.2026.
Skv. upplýsingum frá eigendum liggur fyrir samkomulag íbúa í húsinu um að hver og einn viðhaldi og greiði allan kostnað á gluggum í sinni eign.
Gallar
* Smá skemmd er í parketi í svefnherbergi í kjallara eftir leka. * Smá útfelling er á vesturvegg í annarri geymslunni. * Í ákveðnum veðrum hefur lekið/smitað inn með þakglugga. * Búið er að skipta út flestum eirlögnum, aðeins er eftir í hluta af kjallara. * Innraskipulagi eignar á efri hæðinni var breytt í framkvæmdunum. * Gólf í verönd er sigið. * Enginn eignaskiptasamningur er til fyrir húsið,  enginn ágreiningur er um hvernig lóð er nýtt. 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Byggðavegur 101f - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 166,8 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Aðalhæð:
Forstofa, eldhús og stofa og borðstofa í alrými. 
Efri hæð: Hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. 
Kjallari: Þvottahús/inngangur, baðherbergi, svefnherbergi og tvær geymslur. 

Forstofa er með gráum vínyl flísum á gólfi, gólfhita og ofni. Búið er að endurnýja forstofuhurð.
Eldhús var endurnýjað árið 2018. Falleg sérsmíðuð tvílit innrétting frá Öl ehf með flísalagðri bekkplötu og á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Harðparket er á gólfi. Úr eldhúsi er gengið niður í kjallara, steyptur og lakkaður stigi. 
Stofa og borðstofa eru í alrými þar sem harðparket er á gólfi, gólfhiti, stórir vestur gluggar og nýleg hurð út á timbur verönd. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni, öll með harðparketi á gólfi og eitt með stórum fataskáp og eitt í kjallaranum með viðarparketi á gólfi. Úr einu af herbergjunum á efri hæðinni er gengið út á steyptar vestur svalir, nýleg svalahurð.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2005. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, spónlögð innrétting (hlynur), upphengt wc, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og er honum stýrt í gegnum ofninn.
Annað baðherbergi er í kjallaranum með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc og sturtu.
Stigi upp á efri hæðina og hol eru með harðparketi á gólfi. Opnanlegur þakgluggi er á holinu sem gefur skemmtilegu birtu inn í rými.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar er lakkað gólf og nýleg útidyrahurð og gluggi. 
Tvær rúmgóðar geymslur eru í kjallaranum með lökkuðu gólfi og litlum gluggum. Léttur veggur er á milli þeirra. 

Annað
- Efri hæðin var mjög mikið endurnýjuð árið 2005 og þá var skipulagi hennar breytt. Sett var ný einangrun upp í loftið og ný loftaklæðning.
- Járn á þaki og þakrennur var endurnýjað 2009.
- Búið er að endurnýja hluta af gleri, gluggapóstum og opnanlegum fögum. 
- Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og stærstan hluta raflagna.  
- Árið 2018 var lagður gólfhiti í aðalhæðina, ný gólfefni og nýtt eldhús. 
- Svalahurðar og inn í þvottahús voru endurnýjaðar árið 2023.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Eignin er laus til afhendingar í byrjun október 2026.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Öngulsstaðir 1B
Efsta hæð
Öngulsstaðir 1B
605 Akureyri
173.9 m2
Fjölbýlishús
414
689 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Melasíða 5j
Skoða eignina Melasíða 5j
Melasíða 5j
603 Akureyri
61.9 m2
Fjölbýlishús
211
725 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Maltakur 7
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Maltakur 7
Maltakur 7
210 Garðabær
158 m2
Fjölbýlishús
322
873 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin