Fasteignasalan TORG kynnir: Fjölskylduvæna og snyrtilega 5 herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Kóngsbakka 2. Frá stofu eru góðar svalir í suður sem snúa inn í sameiginlegan garð. Fjögur svefnherbergi og sér þvottahús innan íbúðar. Fjölbýlið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár; þak og gluggar endurnýjaðir ásamt múrviðgerðum og málun, gaflar hússins klæddir og timbur á svalahandriðum endurnýjað. Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali, s. 898-3326, dorothea@fstorg.is.
Skráð heildarstærð samkvæmt HMS er 110,3 fm. Íbúðin sjálf er 98,6 fm og sérgeymsla í kjallara er 11,7 fm. Endurnýjaðar eldvarnarhurðir eru í stigagangi. Gluggar og svalahurð hafa verið endurnýjuð. Gólfefni eru parket, flísar og dúkur.
Sækja söluyfirlit hér
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp við gang. Opið er inn í alrými með stofu og borðstofu.
Eldhús: Eldhús er opið að hluta við borðstofu. Góð viðarinnrétting með stálofni í vinnuhæð og stálísskáp sem getur fylgt. Keramikhelluborð með innbyggðri viftu fyrir ofan. Innbyggð uppþvottavél. Borðkrókur er við glugga við enda innréttingar.
Þvottahús: Innaf eldhúsi er þvottahús með vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt geymsluhillum á vegg.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð stofa og borðstofa með gluggum eftir heilum vegg. Útgengi er út á góðar svalir í suðaustur sem snúa inn í sameiginlegan garð með leiksvæði. Timburflísar eru á svalargólfi.
Hol/gangur: Rúmgóður fataskápur er á gangi.
Svefnherbergisgangur: Á ganginum eru baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með innbyggðum glerskáp fyrir ofan. Sturtuklefi, handklæðaofn og salerni á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með innbyggðum fataskáp eftir einum vegg.
Herbergi 2: Með einföldum fataskáp.
Herbergi 3: Með einföldum fataskáp.
Herbergi 4: Rúmgott barnaherbergi með einföldum fataskáp.
Sérgeymsla: Sérgeymsla er í kjallara með glugga, 11,7 fm að stærð, rúmgóð með hillum.
Sameign: Þurrkherbergi og hjólageymsla eru á gangi við inngang hússins. Í kjallara eru auk þess tvær sameiginlegar geymslur.
Sameiginlegar hleðslustöðvar eru á vegum húsfélagsins í Kóngsbakka 2-16 frá ON.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign þar sem göngufæri er í flesta þjónustu, svo sem skóla, leikskóla og verslanir í nærumhverfi. Stutt er í góðar almenningssamgöngur í Mjódd og í strætó nr. 12 sem stoppar enn nær og gengur alla leið niður í bæ. Fallega gróið útivistarsvæði er í göngufæri.
Allar upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali, gsm: 898-3326, dorothea@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og, ef þurfa þykir, leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Upplýsingar sem fram koma í söluyfirlitinu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir upplýsingarnar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, svo sem lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það er lagt á.