Föstudagur 13. mars
Fasteignaleitin
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:30
Skráð 12. mars 2026

Heiðarból 8

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
68.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
44.900.000 kr.
Fermetraverð
657.394 kr./m2
Fasteignamat
41.150.000 kr.
Brunabótamat
36.500.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2088464
Landnúmer
127284
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Þak
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnota reitur í suður
Lóð
14,24
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi: Fyrirhugað að setja upp ruslaskýli og merkja bílastæðin þar sem hver og einn fær merkt stæði. Rætt var um að fá tilboð í að merkja bílastæðin, slíkar framkvæmdir myndu eiga sér stað þegar nær dregur sumrinu. Einnig rætt um að fá tilboð í uppsetningu á ruslatunnuskýli. 
 
Margrét Rós, lgf og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og mikið endurnýjaða 3ja herb. endaíbúð á fyrstu hæð við Heiðarból 8, 230 Reykjanesbær. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign sem skiptist í forstofu, gang, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og samliggjandi stofu og borðstofu með útgengi á sérafnotareit í suðvestur (leyfi fyrir afgirtum sólpalli). Sérgeymsla íbúðar er á sömu hæð ásamt hjóla- og vagnageymslu í sameign og sameiginlegri þvottahúsaðstöðu. Stórt bílastæðaplan er við húsið og góð aðkoma að eigninni. Eignin er staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla og íþrótta- og tómstundastarf. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 68,3 m² og eru allir fermetrar innan íbúðar. Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er óskráð og er því ekki inn í fermetratölu. 

*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***

Nánari Lýsing:
Forstofa og gangur með fataskáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, viðarborðplötu, bakaraofni, helluborði, og innbyggðum ísskáp. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í rúmgóðu og björtu rými með parket á gólfi og útgengi á sérafnotareit til suðvestur, þar er hægt að gera góðan sólpall. 
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með parket á gólfi.
Baðherbergi nýlega endurnýjað með sturtu, innréttingu með vask, blöndunartæki, salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum.

Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er staðsett í sameign á sömu hæð. 
Þvottahús er sameiginlegt með flísum á gólfi og hver íbúð er með sína vél.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign ásamt þvottahúsaðstöðu. 

* Endurbætur á íbúð að sögn seljanda (2021-2022):
- Parket á gólfum endurnýjað
- innihurðir og listar endurnýjaðar 
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð
- Baðherbergisinnrétting endurnýjuð
- Flísar á gólfi baðherbergis endurnýjaðar
- Allir ofnar í íbúð endurnýjaðir nema í hjónaherbergi og á baðherbergi

* Endurbætur á húsi og sameign á s.l. árum að sögn seljanda:
- Skipt hefur verið um þakjárn á húsinu 
- Gluggar hafa verið endurnýjaðir í flestum íbúðum ásamt svalarhurð
- Neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Forhitari er á kerfi
- Suðurgafl hefur verið klæddur
- Stigagangur nýlega málaður og nýtt teppi sett 2022 

Eignin er vel staðsett í vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, íþrótta og tómstundariðju og m.a í göngufæri við Heiðarskóla, Leikskólana Heiðarsel og Garðarsel

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/01/201815.250.000 kr.22.600.000 kr.68.3 m2330.893 kr.
28/04/201510.750.000 kr.9.300.000 kr.68.3 m2136.163 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barónsstígur 6
Bílastæði
Opið hús:16. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barónsstígur 6
Barónsstígur 6
101 Reykjavík
82.6 m2
Fjölbýlishús
211
1028 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Freyjugata 32
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:45
DJI_0078.JPG
Skoða eignina Freyjugata 32
Freyjugata 32
101 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
413
1178 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Skoða eignina Þorrasalir 17
Bílastæði
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þorrasalir 17
Þorrasalir 17
201 Kópavogur
116.3 m2
Fjölbýlishús
413
850 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Laugartún 6b
Opið hús:18. mars kl 16:15-17:00
Skoða eignina Laugartún 6b
Laugartún 6b
606 Akureyri
89.2 m2
Raðhús
312
577 þ.kr./m2
51.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin