Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Laugaból 2 í Reykjadal - Nýlegt 3ja herbergja einbýlishús/heilsárshús á 9.661 m² eignarlóð - stærð 63,8 m² að auk svefnlofts og geymsluskúrs.Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu alrými, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt svefnlofti.
Forstofa er með ljósum parket flísum frá Vídd.
Eldhús og stofa er í alrými þar sem loft eru tekinu upp. Falleg hvít innrétting með dökkri bekkplötu. Gott skúffu- og bekkjarpláss. Vönduð eldhústæki s.s. Siemens gufuofn, Siemens innbyggður örbylgjuofn og Miele helluborð. WiFi stýring er á ljósum í alrými. Útgangur er á rúmgóða verönd úr eldhúsi sem er með þremur hliðum hússins um 90 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með flísum á gólfi. Í hjónaherbergi er hvítur fataskápum og barnaherbergi er koja.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggir eru klæddir með baðþiljum. Á baðherberginu er walk-in sturta, upphengt wc og tengi fyrir þvottavél. Blöndunartæki og baðinnrétting eru frá Tengi.
Svefnloft, ljósar korkflísar frá Þ.Þorgrímsson eru á öllu rýminu. Gluggar snúa vestur og norður með góðu útsýni. Brunastigi er utan á húsi.
Geymslurými er við hlið svefnlofts. Ekki er full lofthæð á svefnlofti en þar er gert ráð fyrir leiksvæði og svefnrými.
Geymsluskúr er við hlið hússins, 14.4 m² að stærð (frá Kofar og hús, tegund Naust). Gólf er einangrað. Búið er að koma fyrir frárennsli og vatnslögnum en ekki búið að tengja.
Verönd: Rúmgóð verönd er með þremur hliðum hússins, um 90 m² og klædd með Lunawood. Á veröndinni er heitur pottur (Queen skel frá heitirpottar.is ásamt loki).
Annað- Lóðin er 9661 m² eignarlóð og er gróðri vaxin.
- Húsið var flutt á staðinn árið 2022.
- Heitavatnsréttindi fylgja lóðinni og er því enginn kostnaður við upphitun á húsinu á meðan vatn er til staðar.
- Gólfhiti er á öllu rými hússins (utan svefnlofts) og hitastýring frá Danfoss, hægt að stýra m.a. gegnum app.
- Heitapottssstýring WiFi frá heitirpottar.is og hægt að stýra m.a. gegnum app.
- Sérsniðnar ljósar rúllugardínur frá Vogue eru fyrir öllum gluggum.
- Frábært útsýni.
- Möguleiki er að fá innbú keypt með.
Húsið er skráð sem einbýlishús og þar má því hafa fasta búsetu ef áhugi er á. Húsið er staðsett austan megin í Reykjadal um 1 km frá Framhaldsskólanum á Laugum og sundlauginni.
Á Laugum er kjörbúð og veitingastaðurinn Dalakofinn ásamt bensínafgreiðslu.
Vegalengdir: Akureyri um 46 km, Húsavík um 40 km og Mývatnssveit um 40 km.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.