Miklaborg og Böddi kynna:
Björt og vel skipulögð 2ja til 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með sérinngangi af svölum við Bjarkavellir. Íbúðin er skráð alls 63,7 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðarrými 61,5 fm og sérgeymsla í kjallara 2,2 fm.
Nánari Upplýsingar : Böddi Lgf S.8216300 eða boddi@miklaborg.is
Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Við forstofu er aukarými/geymsla með glugga og parketi sem getur nýst sem vinnuaðstaða, fataherbergi eða lítið svefnrými.
Bjart alrými sameinar stofu og eldhús með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu í ljósum og dökkum tónum, innbyggðri uppþvottavél, ofni í vinnuhæð og helluborði með háfi.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergið er flísalagt með sturtu með glervegg, innréttingu, vegghengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í kjallara fylgir sérgeymsla og í sameign er góð hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu, verslanir, skóla á öllum stigum, íþróttasvæði Hauka, sundlaug, líkamsrækt og fjölbreytt útivistarsvæði.
Nánari Upplýsingar : Böddi Lgf S.8216300 eða boddi@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 07/03/2018 | 27.150.000 kr. | 34.000.000 kr. | 63.7 m2 | 533.751 kr. | Já |
| 06/06/2016 | 9.300.000 kr. | 26.600.000 kr. | 63.7 m2 | 417.582 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
201 | 92,2 | 78,9 | ||
105 | 76,6 | 67,5 | ||
107 | 257,6 | 194 | ||
101 | 80,9 | 138,9 | ||
101 | 86,6 | 66,9 | ||
200 | 96,1 | 79,9 |