Fimmtudagur 6. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:11. ágúst kl 17:15-17:45
Skráð 6. ágúst 2026

Hrafnagilsstræti 28 e.h.

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
113.6 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
659.331 kr./m2
Fasteignamat
73.200.000 kr.
Brunabótamat
65.950.000 kr.
Mynd af Sigurður Hjörtur Þrastarson
Sigurður Hjörtur Þrastarson
Löggiltur fasteignasali
8886661www.kaupa.isEignalisti
Byggt 1955
Jarðhæð af 2
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2147736
Landnúmer
148338
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta innan íbúðar
Raflagnir
Tenglar endurnýjaðir í íbúð
Frárennslislagnir
Endurnýjað 2020
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Járn og rennur endurnýjað í kringum 2015
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd við inngang að norðan verðu
Lóð
62,21
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Raki í geymslu í kjallara - stendur til að laga.
Hrafnagilsstræti 28, efri hæð -  Rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja efri hæð í tvíbýli með sér inngangi á góðum stað á Brekkunni - stærð 113,0 m²  
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661, siggithrastar@kaupa.is


Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbrergi, tvær sér geymslur og sameiginlegt þvottahús.

Forstofan er með flísum á gólfi, skápum og opnu fatahengi.
Holið er með harðparketi á gólfi og þaðan er gengið inn í flest rými eignarinnar.
Stofan er rúmgóð og með parketi á gólfi.
Eldhúsið og borðstofan eru í opnu rými og þar er parket á gólfum. Ljós eldhúsinnrétting er í eldhúsinu með flísum á hluta veggja, lítilli eyju, gaseldavél, innfelldum ísskáp og stæði fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er búrgeymsla og þar er einnig gengið niður í sameign. 
Svefnherbergin eru tvö bæði með parketi á gólfi. Góðir fataskápar eru í öðru herberginu og í hinu hafa svalir verið yfirbyggðar og breytt í til dæmis fataherbergi.
Baðherbergið er töluvert endurnýjað, þar eru flísar á gólfi og walk in sturta, ljós innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn, opnanlegur gluggi og hiti í gólfinu.
Tvær sér geymslur eru í kjallara, önnur skráð 6,1 m² og hin er undir stiga.
Þvottahúsið er sameiginlegt með neðri hæð. 
Garðurinn er gróinn og í óskiptri sameign og góð bílastæði eru við húsið.

Annað:
- Góð staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
- Bakdyrainngangur er inn í húsið að norðanverðu og er hann sameiginlegur með neðri hæð.
- Eldhúsið hefur verið tekið í gegn fyrir nokkrum árum, innréttingar, tæki og lagnir.
- Hitaþráður í þakrennum
- Ofnar og ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar.
- Nýlegar innihurðir.
- Stæði á suð- vestur hluta lóðar fylgja íbúð á annari hæð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/10/202040.400.000 kr.37.800.000 kr.113.6 m2332.746 kr.
11/08/201727.150.000 kr.34.500.000 kr.113.6 m2303.697 kr.
09/12/201518.950.000 kr.26.000.000 kr.113.6 m2228.873 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Framnesvegur 61
Skoða eignina Framnesvegur 61
Framnesvegur 61
101 Reykjavík
116.1 m2
Fjölbýlishús
513
844 þ.kr./m2
98.000.000 kr.
Skoða eignina Arnarás 12C
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:13. ágúst kl 18:30-19:00
Skoða eignina Arnarás 12C
Arnarás 12C
210 Garðabær
123.4 m2
Fjölbýlishús
312
899 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
Skoða eignina Melasíða 5j
Skoða eignina Melasíða 5j
Melasíða 5j
603 Akureyri
61.9 m2
Fjölbýlishús
211
725 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 5
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Sóleyjarimi 5
Sóleyjarimi 5
112 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin