OPIÐ HÚS - ENGJASEL 3 - MÁNUDAGINN 16. NÓV - FRÁ KL. 17.00 - 17.30.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða snyrtilegt 6 herbergja 186,0 fm raðhús á þrem hæðum með sérinngangi, stæði í bílageymslu og lokuðum garði í Engjaseli 3 í Reykjavík. Af jarðhæð er gengið út í lokaðan garð í gegnum þvottahús. Múr við tröppur á inngangi lagfært sumar 2026 ásamt því að hús að framan var múrviðgert og málað, einnig var skipt um rennur að framan.
Stutt er í leik- og grunnskóla, strætó stoppar rétt hjá og er stór skiptistöð í Mjódd þar sem er líka heilmikil almenn þjónusta eins og Nettó, apótek, læknaþjónusta, bakarí og fleira. Íþróttastarf ÍR og Leiknis er ekki langt frá heldur.
Möguleiki er að nýta hluta jarðhæðar til útleigu og var gert áður. Við inngang í eignina eru tvö herbergi og er búið að breyta öðru herberginu í lítið eldhús. Við þessi tvö herbergi er líka baðherbergi með salerni, handlaug og sturtu.Íbúðin er 63,5 fm (merkt 02-0101), íbúð er 60,5 fm (merkt 02-0201) og íbúð sem er 62,0 (merkt 02-0301), samtals er eignin skráð 186,0 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isJarðhæð:Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Hol er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, opin sturta, wc, lítil innrétting hillur og skápur.
Herbergin eru 3 og eru með parketi á gólfum og skápum. eitt er innréttað sem eldhús með flísum á gólfi, skápur, vaskur, helluborð ásamt lítilli innréttingu og háfur.
Þvottahús er með flísum á gólfi, skápar, vaskur og vinnuborð, ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er útgengt á lokaðan austurpall þar sem er geymsluskúr og rafmagnspottur.
Stigar á milli hæða eru með steinteppi.
Miðhæð:Stofa er með flísum á gólfi og þaðan er útgengt á austursvalir.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, hvít innrétting ásamt veggklæðningu að hluta og háfur.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, wc og innrétting undir vask.
Herbergi er með plastparketi á gólfi og skáp.
Stigar á milli hæða er með steinteppi.
Efsta hæð:Herbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum, skápum og aðalsvefnherbergi er með útgengi á austursvalir.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar með sturtu, wc, handklæðaofn og skápar yfir og undir vask.
Geymsla er rúmgóð undir súð og ekki hituð.
Eigninni fylgir svo stæði í bílageymslu og þar er líka hjóla- og vagnageymsla.