Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna í sölu fallega og vel skipulagða 6 herbergja efri sérhæð ásamt bílskúr í snyrtilegu tvíbýlishúsi í litum friðsælum botnlanga við Látrasel 11. Glæsileg skjólrík afgirt verönd er fyrir aftan húsið ásamt fallegum grónum garði sem snýr til suðurs. Suðurhlið hússins stendur á jaðarlóð, verönd og garður njóta því mikils næðis. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 189,4 m2 og þar af er 34,2 m2 bílskúr. Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa, inn af forstofu er baðherbergi. Stofa og borðsstofa eru í opnu rými, eldhús, sjónvarpsherbergi, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús. Bílskúr.
Einstaklega skemmtileg eign með aukinni lofthæð á frábærum stað í Seljahverfinu. Vinsamlega bókið skoðun hjá Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Að sögn seljenda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum:- Hús málað og framkvæmdar múrviðgerðir 2022.
- Skipt um þakkant ásamt þvi að skipt var um klæðningu og sett upp regn og vindhlíf við hluta þakkants á austurgafli árið 2022.
- Verönd byggð ásamt skjólveggjum árið 2020.
- Gólfefni endurnýjuð á alrými ásamt öllum herbergjum og stærra baðherbergi árið 2019.
- Innihurðar sprautulakkaðar árið 2019.
- Skipt um framhliðar á rofum og tenglum og settir dimmerar á flesta rofa árið 2019.
- Skipt var um flest allt gler í húsinu af fyrri eigendum og settir plastlistar á álagsfleti flestra glugga.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Harðparket á gólfi, rúmgóður fataskápur.
Baðherbergi: Sturta, handlaug og upphengt salerni. Flísar á gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa/ Borðstofa: Bjartar og rúmgóðar stofur, harðparket á gólfi. Útgengt á verönd og út í garð sem snýr til suðurs.
Eldhús: Rúmgóð innrétting frá Axis. Tveir ofnar, 80 sm helluborð og háfur, Bosch tæki. Rennihurð inn í eldhús. Harðparket á gólfi.
Búr: Með rennihurð er inn af eldhúsi.
Sjónvarpsherbergi: Rúmgott með stórum glugga, harðparket á gólfi. Möguleiki á að breyta í svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart,
mjög stór fataskápur með átta hurðum og skúffum. Allir fataskápar í íbúðinni eru sérsmíðaðir frá Axis. Harðparket á gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott og bjart,þrefaldur fataskápur með skúffum, harðparket á gólfi.
Herbergi 2 : Rúmgott og bjart,fjórfaldur fataskápur með skúffum, harðparket á gólfi.
Herbergi 3: Harðparket á gólfi,tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi: Stórt og bjart með skemmtilegum glugga. Nýleg innrétting og blöndunartæki, baðkar, flísar á gólfi.
Þvottahús: Flísalagt gólf. Skápar á vegg. borðplata fyrir ofan vélar. Gluggi með opnanlegu fagi.
Bílskúr: Rúmgóður 34,2 fm. Hellulagt bílaplan, hiti í plani. 3ja fasa rafmagn ásamt hleðslustöð fyrir rafbíl.
Geymsla: Er inn af bílskúr.
Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s skóla, leikskóla, matvöruverslanir o.fl.Skemmtilegar gönguleiðir eru einnig í næsta nágrenni. Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.