Miðvikudagur 30. september
Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Melgerði 31 - 2 íbúðir

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
143.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
823.899 kr./m2
Brunabótamat
32.900.000 kr.
Byggt 1963
Svalir
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20347294
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Virkilega falleg og mikið endurnýjuð íbúð á tveimur hæðum við Melgerði 31, 108 Reykjavík. Um er að ræða íbúð á miðhæð og í kjallara sem er hægt er nýta sem eina eign eða tvær aðskildar íbúðir. Að sögn eiganda hafa eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar sumarið 2025: Nýtt járn á þaki, pappi og flasningar ásamt gluggum. Húsið hefur verið múrviðgert, pússað og málað að utan. Útitröppur múraðar og málaðar. Bílastæði og göngustígar steyptir. Nýjar þökur lagðar á hluta garðsins og við bílastæði. Nýtt handrið ásamt nýju gleri í útidyrahurðum og einnig hefur rafmagnstaflan verið endurnýjuð. Eignirnar hafa verið endurnýjaðar að innan t.a.m innréttingar, gólfefni, baðherbergi o.fl. Eign sem býður upp á mikla möguleika t.d leigja út aðra eignina og létta þannig á greiðslubyrðinni. Ekkert formlegt húsfélag er starfrækt í húsinu. Seljandi skoðar skipti.

Skv. skráningu HMS er eignin skráð 118,1 fm og skiptist þannig að miðhæðin er 68,5 fm og kjallaraíbúðina 49,6 fm en skv nýjum eignaskiptayfirlýsingu sem er ekki búið að þinglýsa mun birt stærð verða 143,1 fm sem skiptist þannig að miðhæðin verður 75,2 fm og kjallarinn 67,9 fm. Þannig að í raun er eignin 143,1 fm. 

Nánari lýsing miðhæðar: Komið er inn í sameiginlegt flísalagt anddyri með risi. Frá forstofu tekur við hol með parketi á gólfi, fataskápur. Eldhús með nýlegri, fallegri innréttingu. Björt og rúmgóð stofa með stórum glugga sem snýr til suðurs. Opið er á milli stofu og eldhúss. Tvö svefnherbergi og er annað herbergið með góðum fataskáp. Flíslagt baðherbergi, stór Walk-in sturta, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi á baðherbergi. Á gólfum er reykt eikarplankaparket og flísar á baðherbergi. 

Nánari lýsing kjallara: Frá holi er unnt að ganga niður í kjallarann / steyptur stigi milli hæða. Sérinngangur. Köld útigeymsla við inngang. Komið er inn í hol með parketi á gólfi. Tvö stór herbergi, parket á tveimur en teppi á einu. Þvottahús með glugga. Parketlögð stofa. Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu / neðri skápar, gluggi. Baðherbergi með sturtu, flísar á gólfi, gluggi. ATH. Ekki er full lofthæð  kjallaranum. 

VIRKILEGA GÓÐ STAÐSETNING ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D1 210
Opið hús:01. okt. kl 11:55-12:45
Orkureiturinn D1 210
108 Reykjavík
132.7 m2
Fjölbýlishús
423
1017 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 209
Opið hús:01. okt. kl 11:55-12:45
Orkureiturinn D1 209
108 Reykjavík
145.1 m2
Fjölbýlishús
322
1026 þ.kr./m2
148.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 303
Opið hús:01. okt. kl 16:30-17:00
Lautargata 5 íb. 303
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
933 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 0002
Opið hús:01. okt. kl 16:30-17:00
Lautargata 5 íb. 0002
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
925 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin