Föstudagur 18. október
Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2024
Deila eign
Deila

Austurbrú 14 - 405

Nýbygging • FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
96.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
Verð
87.500.000 kr.
Fermetraverð
910.510 kr./m2
Fasteignamat
47.650.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2531372
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2 svalir
Lóð
1,54%
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við Pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.


Fyrir ítarlegar upplýsingar, m.a. skilalýsingu smellið hér

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á byggd@byggd.is***

Íbúð 405
Mjög rúmgóð tveggja herbergja útsýnisíbúð með aukinni lofthæð og tvennar svalir í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 14.
Íbúðin er samtals 96,1 fm., þar af er geymsla 8,2 fm..


Íbúðin:
Komið er inn í anddyri, gert er ráð fyrir skápum á gangi. Gert er ráð fyrir eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými sem er með mikilli lofthæð. Úr stofu er gengið út á svalir bæði til austurs með útsýni yfir Pollinn og skjólsælar svalir til suðurs. Gert er ráð fyrir þvottahúsi við hlið eldhúss.
Baðherbergi og herbergi eru á gangi. 
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Íbúðin afhendist ófullgerð, nánast tilbúin til tréverks.  Gert er ráð fyrir að kaupandi vilji hanna lokafrágang á íbúðinni þar sem miklir og skemmtilegir möguleikar eru við lokafrágang á þessari einstöku eign.


Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.

Við Austurbrú 10-14 verða 35 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna.
Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu.
Í heild er um að ræða 64 íbúðir að meðtöldum íbúðum úr húsum 16 og 18 sem koma í sölu síðar. Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Áætluð afhending: Sumar 2024
Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2531372
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
4
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
8 - Í notkun
BYGGÐ
http://www.byggd.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hofsbót 2 203
Skoða eignina Hofsbót 2 203
Hofsbót 2 203
600 Akureyri
98.5 m2
Fjölbýlishús
312
852 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsbót - 203
Skoða eignina Hofsbót - 203
Hofsbót - 203
600 Akureyri
98.5 m2
Fjölbýlishús
312
852 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsbót 2 íbúð 203
Hofsbót 2 íbúð 203
600 Akureyri
98.5 m2
Fjölbýlishús
312
852 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Austurbrú 14
Bílastæði
Skoða eignina Austurbrú 14
Austurbrú 14
600 Akureyri
96.1 m2
Fjölbýlishús
211
905 þ.kr./m2
87.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin