Föstudagur 21. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:25. ágúst kl 17:30-18:00
Skráð 20. ágúst 2026

Sléttahraun 18

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
286.6 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
184.900.000 kr.
Fermetraverð
645.150 kr./m2
Fasteignamat
163.300.000 kr.
Brunabótamat
127.700.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Byggt 1961
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2078881
Landnúmer
122249
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Drenað að hluta 2018 og skólp viðgert að hluta 2026
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað árið 2024
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita og gólfhiti
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Gufugleypir í eldhúsi virkar ekki. 
 
Einstaklega fallegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara og bílskúrs á þessum fjölskylduvæna stað að Sléttahrauni í Hafnarfirði. Á aðalhæðinni er eldhús og tvær stofur. Á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er vinnuaðstaða, þvottahús og geymslur, þar af ein mjög rúmgóð geymsla með gluggum sem er notuð sem svefnherbergi. Kjallarinn er með sérinngangi sem býður upp á ýmsa möguleika. Falleg hraunlóð með palli og hellulögn. Húsið hefur fengið gott viðhald og mikið endurnýjað síðustu ár. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 286,6 fm. og þar af er bílskúr skráður 24,5 fm. 

Nánari lýsing:
Forstofa
rúmgóð með hita í gólfi og nýlegum flísum. Úr forstofu er gengið niður í kjallara og inn í rúmgott hol.
Gestasalerni er innaf forstofu með upphengdu salerni og flísum á veggjum og gólfi. 
Hol með fallegum steyptum stiga og innangengt er í eldhúsið og góðar stofur.
Eldhús er rúmgott og bjart, góður eldhúskrókur, eikar eldhúsinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og ofnar í vinnuhæð.  Í eldhúsinu er gólfhiti og flísar á gólfi. Úr eldhúsi er opið yfir í borðstofu og stofu. 
Stofa/borðstofa með góðri lofthæð, innfelld lýsing í lofti og stór gluggi gerir rýmið bjart og fallegt. Niðurlímt, gegnheilt parket.
Sjónvarpsstofa er björt og rúmgóð með innfelldri lýsingu. Niðurlímt, gegnheilt parket. Útgengt er út í bakgarð þar sem hellulögð verönd liggur meðfram húsinu. 

Efri hæð
Gengið er upp fallegan stiga upp á efri hæð hússins. 
Hjónaherbergi mjög rúmgott með góðu skápaplássi og með gegnheilu parketi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á rúmgóðar svalir. 
Svefnherbergi eru þrjú, öll með fataskápum og gegnheilu parketi. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með innangengri sturtu, góðri innréttingu, upphengt salerni, gluggi og hiti í gólfi. Flísalagt í hólf og gólf. 

Kjallari með sérinngangi
Þvottaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, boðplata með vask, gluggar og flotað gólf. 
Herbergi með teppi á gólfi. 
Geymslurými er mjög gott á hæðinni og er einnig óútgrafið rými í kjallar sem býður upp á ýmsa möguleika. 
Sérinngangur er inn í kjallarann en ekki er full lofthæð.  

Bílskúr er rúmgóður með rafmagni, heitu og köldu vatni og upphitaður. Bílskúrshurð með bílskúrshurðaropnara. Útgengt er úr bílskúrnum út í bakgarð hússins. Hellulagt bílaplan. 

Lóðin er falleg hraunlóð sem umlykur húsið að hluta ásamt hellulagðri verönd sem liggur meðfram húsinu að bakatil. Nýlegur pallur og kassar til ræktunar.

Viðhald síðustu ára: 
Drenað að hluta og töppur múraðar 2018
Nýjar flísar og gólfhiti í anddyri 2019
Pallar í garði 2019
Nýjir ofnar í stofu 2020
Endurnýjað baðherbergi á efri hæð 2021
Nýjir gluggar í svefnherbergjum á suðaustur hlið og norðvesturhlið, auk baðhergis og sjónvarpsherbergis. Einnig nýr gluggi og neyðarútgangur í svefnherbergi í kjallara 2023
Nýtt þak 2024
Múrviðgerðir og húsið málað 2025
Skólpviðgerð júní 2026

Einstaklega fallegt og vel staðsett fjölskylduhús þar stutt er í alla þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/10/201659.400.000 kr.67.600.000 kr.286.6 m2235.868 kr.
12/05/201454.000.000 kr.55.900.000 kr.286.6 m2195.045 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1970
24.5 m2
Fasteignanúmer
2078881
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.800.000 kr.

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 29
Opið hús:23. ágúst kl 14:00-14:30
251024_474_Vorbraut_TÓ arkitektar_01 FACADES.jpg
Skoða eignina Vorbraut 29
Vorbraut 29
210 Garðabær
269.3 m2
Raðhús
635
850 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 64
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Víðimelur 64
Víðimelur 64
107 Reykjavík
266.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
1027
600 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Blómvellir 21
Hleðslustöð
Skoða eignina Blómvellir 21
Blómvellir 21
221 Hafnarfjörður
186.7 m2
Raðhús
624
728 þ.kr./m2
136.000.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 43
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíðarvegur 43
Hlíðarvegur 43
625 Ólafsfjörður
277.9 m2
Einbýlishús
614
287 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin