eignasala.is kynnir eignina Kuggavogur 17, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-14, fastanúmer 250-2922 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Kuggavogur 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-2922, birt stærð 62.2 fm.
Hér er um að ræða virkilega fallega, bjarta og einstaklega vel skipulagða 2. herberga íbúð á jarðhæð, aukin lofthæð er í eigninni þar sem hver fermetri er nýttur til fullnustu.
- Húsið var klætt að utan árið 2025
- Aukin lofthæð / Vandaðar innréttingar frá HTH.
- Eldhústæki, frá AEG, veggofn, spanhelluborð, uppþvottavél, gufugleypir.
- Baðherbergi með flísalögðum gólfum og hluti veggja.
- Borðplötur í eldhúsi og baðherbergi úr steini.
- Milliveggir úr þrýstihertri frauðsteypu.
- K einangrunargler
- Myndadyrasími / Sorp í djúpgámum
- Ál-tré gluggar og hurðir / Gólfhiti á baðherbergi.
- Lofthæð er 3,6 m og 3,2 í hluta stofu.
Nánari lýsing.
Forstofuhol með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp.
Eldhúsið er opin inn í stofu með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, Led lýsing undir efri skápum, innbyggð uppþvottavél og gufugleypir, spanhelluborð. Gert er ráð fyrir háum ísskáp í innréttingu.
Stofa með harðparketi á gólfi og útgengt út á sérafnotarétt til suð-austurs.
Svefnherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp á heilum vegg.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til, falleg innrétting með fallegum spegli með led lýingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara og yfir vélunum er skápur, stór sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Geymsla með mikilli lofthæð.
Vogabyggð er nútímalegt borgarhverfi með tengingu við náttúruna og Elliðavoginn. Öll almenn þjónusta líkt og leiksóli, Menntaskólin við Sund og matvöruverslun er í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Reynir Þór Reynisson aðstoðarmaður fasteignasla, í síma 7770915, tölvupóstur reynir@eignasala.is. Eða julli@eignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.