Eignamiðlun kynnir:
Björt og falleg 2. herbergja íbúð við Bræðraborgarstígur 53. Íbúðin er á 1.hæð og er skráð 54,7 fm þar af er geymsla í kjallara 11,4 fm. Frábær staðsetning í snyrtilegu fjölbýli í vesturborginni.Eignin skiptist í: Forstofu/ gang, 1 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.***Gengið er inn um sameiginlegan inngang og upp eina hæð að íbúð.
Herbergið er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergið er með handlaug, salerni og fallegum sturtuklefa. Flísalagt.
Eldhús með hvítri innréttingu með viðarborðplötu.
Stofa er í opnu rými við eldhús. Íbúðin er sérstaklega björt með gluggum í sitthvorum enda hússins.
Parket er á öllum rýmum fyrir utan baðherbergi og eldhúsi.
Í kjallara er rúmgóð geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Sterkt húsfélag er starfandi í húsinu sem heldur vel utan um allar framkvæmdir. Árið 2007 fékk húsið verðlaun fyrir gott viðhald og endurbætur.
Nánari lýsing eignarinnar:Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma
588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook