Miðvikudagur 2. september
Fasteignaleitin
Skráð 2. sept. 2026

Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
113.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.500.000 kr.
Fermetraverð
568.282 kr./m2
Brunabótamat
58.900.000 kr.
Byggt 1977
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
221274812
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Selvogsbraut 13A, Þorlákshöfn.  Fallegt og mikið endurnýjað 81m2 miðjuraðhús ásamt 32,8m2 bílskúr.  Húsið er einstaklega skemmtilega staðsett í rólegum botnlanga en skammt frá verslun og þjónustu.

Húsið er laust til afhendingar !

*  Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *


Eignin telur:
* Flísalaga forstofu með fatahengi.
* Rúmgóða og bjarta stofu með stórum gluggum.
* Fallegt eldhús með nýrri, hvítri innréttingu og nýjum heimilis- og hreinlætistækjum, innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgja. 
* 2 rúmgóð svefnherbergi.  Stórir, nýjir, fataskápar eru í öðru herberginu.  
* Fallegt baðherbergi með nýrri innréttingu,nýjum hreinlætistækjum og nýjum flísum á gólfi og veggjum.
* Á öllum gólfum, nema blautflötum, er nýtt harðparket á gólfi.  
* Nýjar innihurðar eru í öllu húsinu.  
* Mjög gott þvottahús með nýrri innréttingu og flísum á gólfi.  Úr þvottahúsinu er utangengt á pall.  Frá pallinum er síðan innangengt í bílskúrinn.

* Bílskúrinn er fullfrágengin.  Gólf málað. 

*  Framan við húsið er nýr sólpallur.  Bílaplan er tilbúið undir hellur eða steypu.  

Húsið hefur verið endurnýjað að innan að verulegu leyti, en eftir er að klára frágang og þéttingu glugga og hurða, múr- og málningarvinnu. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super 1 pizza
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á hamingjuhofn.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Suðurlands
http://eignin.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Selvogsbraut 3 með bílskúr
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Selvogsbraut 3 með bílskúr
815 Þorlákshöfn
131.6 m2
Raðhús
312
622 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 3 með bílskúr
Heitur pottur
Selvogsbraut 3 með bílskúr
815 Þorlákshöfn
131.6 m2
Raðhús
312
622 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Bílskúr
Á einni hæð
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113.5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 4, Afhendist fullbúið
Bílskúr
Á einni hæð
Núpahraun 4, Afhendist fullbúið
815 Þorlákshöfn
133.4 m2
Raðhús
413
575 þ.kr./m2
76.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin