Smekkleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli á afar vinsælum stað við Rauðalæk í Reykjavík. Staðsett í nálægð við alla helstu þjónustu og útivistarsvæði Laugardalsins.
** 2 svefnherbergi
** Sérinngangur
** Afgirtur garður - sérafnotareitur
** Frábær staðsetning
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurEignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing
Anddyri er með sérinngangi og góðum skápum. Flísar á gólfi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og viðarborðplötu, bakaraofni, helluborði, veggháf og stæði fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með útgengi á hellulagða verönd og afgirtan garð sem er sérafnotareitur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flíslagt í hólf og gólf með dökkri innréttingu og hvítri handlaug, salerni, "walk-in" sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús er með innréttingu og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Málað gólf.
Geymsla er inn af þvottahúsi.
Í sameign er geymsla sem nýtist undir hjól og dekk.
Skipt hefur verið um flesta glugga í eigninni og árið 2023 var þakjárn endurnýjað.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.