ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu tvö eignarhluta að Klettatröð 19 í Reykjanesbæ. Klettatröð 19D, merkt 01-04, fasteignanúmer 253-4760 birt stærð 148,1fm &
Klettatröð 19C, merkt 01-03 fasteignanúmer F253-4759 birt stærð 99,2fm
Heildar birt stærð eignar er 247.1 fm.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Klettatröð 19C. Eignin skiptist í innkeyrsluhurð og inngangshurð. Flatamál nh er 74.4 fm og millilofts 24.8 fm skv skráningatöflu eignar. Möguleiki er að stækka efrihæð / milliloft.
Gólf lakkað. Handlaug heitt og kalt vatn til staðar og niðurfallstútur í gólfi fyrir mögulegt baðherbergi.
Rafmagn og pípulagnir eru utanáliggjandi og því einfalt að bæta. 3 fasa rafmagn 16 amp tengill til staðar í rými.
Klettatröð 19D. Eign sem er á tveimur hæðum, birt stærð neðrihæðar er 75.2 fm og efrihæðar er 72.9 fm í dag er skipulag að á neðri hæð er skipt í aflokað forrými sem í dag er golfhermir, og svo bakrými sem er hægt að nýta sem skrifstofu, geymslu, sýningarsvæði eða aðstöðu. Farið upp á efrihæð þar er skrifstofu rými, og alrými sem henntar fyrir opnar starfsstöðar, snyrting með salerni, handklæðaofn og sturtuklefa.
við endan á Klettatröð 19D eru sérmerkt fjögur bílastæði. Önnur bílastæði eru fyrir framan hús. Þessi fjögur bílastæði gefa möguleika á stækkun fáist til þess heimild byggingaryfirvalda.
Sér mælar eru fyrir hvern eignarhluta. Um er að ræða sitthvort faseignanúmerið og því hægt í framtíðinni að selja annan hluta.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.