LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir mjög mikið endurnýjað og virkilega vel skipulagt 122 m2 steypt einbýlishús á einni hæð ásamt 32,9 m2 bílskúr, samtals 154,9 m2. Eignin skiptist í forstofugang, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr og geymslu. Mjög fallegur garður með stórri verönd. Inn af bílskúr er óskráð ca.40 m2 geymsla undir húsinu, sem er gluggalaus. Fasteignamat 2026 verður 126.750.000 kr.
Helstu endurbætur 2020
* Allt rifið innan úr húsinu og endurnýjað s.s veggjagrindur styrktar og klæddar upp á nýtt
* Nýtt rafmagn ídregið og net, ný rafmagnstafla.
* Ný einangrun í útveggi og loft.
* Nýtt neysluvatn.
* Varmaskiptir settur fyrir neysluvatn.
* Gólfhiti frá Heit Gólf í öllum rýmum.
* Hurð út á pall, sett upp frá Gluggalausnum.
* Ný gólfefni á alla eignina og loftaklæðning auk þess voru allar innréttingar endurnýjaðar.
* Shelly snjallrofar í flestum rýmum.
* Búið er að leggja fyrir vatnsleiðslum í bílskúr fyrir heitann pott útí garði.
* Nýtt neysluvatn lagt í bílskúr, net dregið úr smáspennutöflu, og 3ja fasa rafmagn gert tilbúið fyrir bílahleðslu.
* Ný rakasperra, einangrun og vindpappi á þak á húsi.
* 2023 þakpappi á bílskúr frá Þakco, skipt út öllum gluggum nema tveimur í eldhúsi og tveimur í þvottahúsi frá Gluggalausnir
* 2025 flotað gólf í bílskúr (Heit Gólf og ný hurð frá Gluggalausnum (eftir að setja í en verður gert fyrir afhendingu eignar )
* Fyrir nokkrum árum var settur hiti undir flísar fyrir framan hús og sólpallur smíðaður í bakgarði.
Nánari lýsing
Forstofa með flísalögðu gólfi og fataskáp ásamt skóhillu.
Rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, gluggar á tvo vegu, harðparket á gólfi og útgengi út um rennihurð út í garð.
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri IKEA innréttingu með ljúflokunum og frontum frá Svansverk, tveimur AEG ofnum í vinnuhæð, annar ofninn er combi ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður heill ísskápur , stór eyja með keramik helluborði, hægt er að sitja við eyjuna. Svartur vaskur með svörtum blöndunartækjum.
Þvottahúsið er rúmgott með flísalögðu gólfi og góðum opnum hirslum, innrétting í kringum þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur.
Gangur með harðparketi á gólfi og góðri skrifstofuaðstöðu.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum. falleg innrétting með vaski ofaná og fallegum led spegli, upphengt salerni og innbyggður efri skápur, walk in sturta með sérsmíðuð gleri og innbyggðum svörtum blöndunartækjum. Sturtugler og hilla inná baði eru sérsmíði frá TIG-Suðu.
Barnaherbergin eru tvö með harðparketi á gólfi og fataskápum. Í öðru þeirra en sérsniðið barnarúm.
Bílskúrinn er 32,9 m2 og er með rafmagni, hita og vatni. Flotað gólf. Innaf bílskúr er óskráð ca.40 m2 geymsla sem er undir húsinu.
Garðurinn er mjög fallegur með stórri verönd og skjólveggjum að hluta, pallur nær meðfram þremur hliðum hússins.
Mjög vel skipulagt hús á einni hæð. Frábær staðsetning í höfuðborginni þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is