Verð miðast við 75% kaup
Valshlíð 5 – íbúð 412, 102 Reykjavík.Björt og glæsileg
3ja herbergja íbúð á 4. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Íbúðin nýtur sín einstaklega vel með opnu alrými, gólfsíðum gluggum og útgengi á suðursvalir sem skapa fallega birtu og létt yfirbragð.
Skráð stærð
79,5 fm, þar af 6,8 fm geymsla í kjallara.
* Hlutdeildarkaup
* Þarft einungis 10% útborgun
* 6.592.500kr í útborgun mv. 10% eigið fé.Fullt verð á íbúðinni er : 87.900.000krHelstu atriði- 3ja herbergja íbúð á 4. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns.
- Tvö svefnherbergi og bjart alrými með gólfsíðum gluggum.
- Útgengi á suðursvalir úr stofu.
- Innréttingarþema Mjöll 2, sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu og vandað efnisval.
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsingKomið er inn í opið anddyri með góðum fataskáp sem leiðir áfram inn í fallegt og rúmgott alrými þar sem eldhús og stofa/borðstofa mynda samfellda og notalega heild. Gólfsíðir gluggar og útgengi á suðursvalir gefa rýminu mikla birtu og skemmtilega rýmistilfinningu. Eldhúsið er með eyju, ljósri innréttingu og ljósyrjóttum quartz-steini sem undirstrikar fágaðan og nútímalegan svip eignarinnar. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum, og baðherbergið er smekklega hannað með sturtuaðstöðu, ljósum steinflísum, speglaskáp og afmarkaðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Hér er um að ræða vel skipulagða og glæsilega eign þar sem birta, efnisval og útfærsla fara einstaklega vel saman.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.