Trausti fasteignasala kynnir til sölu endurnýjaða tveggja herbergja íbúð á 1. hæð á eftirsóttum stað í hjarta Reykjavíkur, nánar tiltekið við Bergstaðastræti 53. Íbúðin er vel skipulögð, snyrtileg og frábær fyrstu kaup. Eignin er í steinsteyptu þríbýli teiknað af Sigurði Kjartanssyni. Íbúðin skiptist í bjarta stofu, eldhús, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi.
Eignin er skráð alls 44,7 fm. skv. HMS og þar af eru tvær sérgeymslur sem fylgja eigninni, 5,5 fm. og 6,4 fm. en aðeins sú minni sem er inn í fermetratölu íbúðar.Smelltu hér til að sækja söluyfirlitAllar nánari upplýsingar veita:
Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali,
s. 894-1976 /
audun@trausti.isAnton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala,
s. 779-5463 /
anton@trausti.isBóka verðmatwww.trausti.isTrausti á FacebookNánari lýsing:Forstofurými hússins er einfaldur skápur sem tilheyrir íbúðinni.
Stofa björt með nýju harðparketi á gólf.
Eldhús ný eldhússinnrétting, bakaraofn, eldavél, vask, harðparket á gólf.
Svefnherbergi bjart og rúmgott með nýju harðparketi á gólf.
Baðherbergi nýjum sturtuklefa, vask, klósett og flísum á gólf.
Sérgeymsla í kjallara eru tvær, ein að stærð 5,3 fm. (inn í fm. tölu íbúðar) og hin er að stærð 6,4 fm. Sameiginlegt rými með tengingu fyrir þvottavél. *Ath. að ekki er full lofthæð í kjallara.
Bakgarður stór og snyrtileg með sameiginlegum sólpalli.
Ný rafmagnstafla í húsinu.
Íbúðin er einstaklega björt og vel staðsett í miðbæ Reykjavíkur, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu. Tjörnin og hljómskálagarðurinn eru í göngufæri sem og leik-, grunn- og menntaskóli. Nálægðin við menningar- og veitingahús borgarinnar gerir það að verkum að hverfið er aðlaðandi fyrir unga sem aldna.