Miðbær fasteignasala kynnir Kvíslartunga 118, 270 Mosfellsbær, skráð 282,5 m2. Eignin er 2ja hæða einbýli með innibyggðum bílskúr og 2ja herbergja 60 m2 aukaíbúð í útleigu á jarðhæð. Miklir möguleikar. Eignin skiptist í 3-4 svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, eldhús, stofu, borðstofu, forstofu, þvottahús, aukaíbúð með sérinngang og svo rúmgóður bílskúr. Stórir gluggar og mikil lofthæð gera eignina skemmtilega og bjarta. Stórar svalir í suðurátt með glæsilegu útsýni.
Eignin er á byggingarstigi 3 en matsstigi 8 (tekið í notkun).Nánari lýsing.
Neðri hæð:Forstofa/hol: Innangengt í bílskúr.
Gestasnyrting er undir stiga, ólokið
Forstofuherbergi//geymsla, ólokið.
Þvottahús, ólokið.
Bílskúr 36,5 m2. innkeyrsluhurð í bílskúrinn er til en óuppsett.Lokað er milli hols og leiguíbúðar.
Efri hæð:
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými. Úr borðstofu er gegnið út á svalir með glæsilegu útsýni. Tengist
Eldhúsið tengt borðstofu, hvít innrétting.
3 svefnherbergi eru á hæðinni auk
fataherbergis inn af svefnherbergi.Baðherbergi með sturtu og baðkari ásamt hvítri innréttingu.
Úti er búið að setja upp stóra verönd en lokafrágangur þar eftir.
Eins og áður sagði er húsið á byggingarstigi 3 en mun lengra komið. Þó er þar ýmislegt sem þarf að klára og vinna að hvort sem úti eða inni. Nánari upplýsingar veitir Sigfús Aðalsteinsson Löggildur fasteignasali, í síma 898-9979, tölvupóstur sigfus@midbaer.is.Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar, almennt á bilinu kr. 50.000 - 75.000. Nánar um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 74.400.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.