ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Staðarborg 26C, 190 Vogar, birt stærð 129.2 fm. Bókið skoðun, sýnum samdægurs!Fimm herbergja miðjuraðhús við Staðarborg 26C í Grænubyggð – nýju og spennandi fjölskylduhverfi við sjávarsíðuna í Vogum á Vatnsleysuströnd, aðeins um 15 mínútna akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Húsið býður upp á óheft sjávarútsýni af efri hæð, sérlega gott og hagkvæmt skipulag sem hentar fjölskyldum einstaklega vel, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottahús, bjart og rúmgott alrými og sér garð með lögnum fyrir heitan og kaldan pott.
** Óheft sjávarútsýni af efri hæð
** 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, sér þvottahús
** Lagnir fyrir heitan og kaldan pott í garði
** Aðeins 15 mín frá höfuðborgarsvæðinuNánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 867-4885, tölvupóstur elin@allt.isNánari lýsing eignar
JarðhæðForstofa er rúmgóð þar sem svefnherbergi ( I ) er staðsett innaf.
Gestasalerni er flísalagt á gólfi og veggjum upp í loft, með upphengdu salerni, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Alrými er opið og rúmgott og samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Aukin lofthæð er yfir hluta rýmisins og fallegir gluggar á báðum hæðum hleypa birtunni inn. Út frá stofu er gengið í sér garð með tengjum fyrir heitan og kaldan pott, og fallega hannaður skjólveggur skilur að íbúðir.
Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá Parka sem nær upp í loft, með eyju og fallegum háf. Kvarssteinn er á borðum, undirfelldur vaskur, og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Eldhústæki eru frá Electrolux.
Milli hæða liggur glæsilegur stigi úr aski sem setur fallegan svip á rýmið.
Efri hæðRúmgott hjónaherbergi með útgengi á vestursvalir og glæsilegu sjávarútsýni, ( II )
Svefnherbergin eru tvö (III og IV).
Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum upp í loft, með sturtu og sturtugleri, upphengdu salerni, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Sér þvottaherbergi er einnig flísalagt á gólfi og veggjum upp í loft.
Útigeymsla fylgir eigninni framan við hús, sem er utan birtra fermetra.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.