Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum að Austurvegi 7 á Seyðisfirði, í húsinu eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Þak hefur verið endurnýjað sem og gluggar, húsið þarfnast hins vegar frekari frágangs og framkvæmda, sérstaklega á neðri hæð og í geymslu- og vinnurýmum. Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, opnar geymslur, eldhús og stofa. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, eldhús, stofa og baðherbergi. Eldhúsinnrétting er í þokkalegu standi. Úr eldhúsinu er fallegt útsýni yfir Seyðisfjörð. Fullbúið baðherbergi með er á efri hæð. Svefnherbergin á efri hæð eru með viðargólfum og hlýlegu yfirbragði. Gangur og hlutar neðri hæðar eru hráir, með sýnilegum einangrunarplötum, ófrágengnu rafmagni og opnum veggjum. Á neðri hæð er svefnherbergi með parketi á gólfi auk baðherbergi með salerni og vaski. Bílskúrinn nýtist í dag sem geymsla. Hann þarfnast viðhalds eða endurbóta, líkt og hluti lóðarinnar sem er stór. Útidyr hússins eru í slöku ástandi og þarfnast skipta. Verönd og svalir gefa gott tækifæri til útiveru og útsýnis, en þær þarfnast viðhalds. Tilvalið tækifæri til að skipta húsinu upp í tvær íbúðir, t.d. til útleigu, og eins eru tækifæri til að nýta bílskúrinn sem sjálfstæða einingu. Eignin er frábærlega staðsett á Seyðisfirði við Lónið og býður upp á fallegt útsýni yfir fjörðinn úr eldhúsi, svefnherbergi og garði.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
01/06/2021
14.900.000 kr.
25.000.000 kr.
192.7 m2
129.735 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.